fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör

Fókus
Mánudaginn 2. mars 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miklar umræður hafa spunnist á Facebook-síðunni Hollvinir Ríkisútvarpsins eftir að greint var frá því að útvarpsþáttur Sölku Sólar Eyfeld hefði verið tekinn af dagskrá Rásar 2.

Salka Sól tilkynnti á Facebook-síðu sinni í gærmorgun að síðasti þátturinn hennar væri farinn í loftið.

„Það er búið að vera svo gaman og gefandi að vera með ykkur fyrst á laugardags- og síðan sunnudagsmorgnum síðustu tæplega 6 árin. Ég hefði svo innilega viljað halda áfram að vakna með ykkur um helgar en ákvörðunin um að þættinum yrði ekki framhaldið á dagskrá Rásar 2 var ekki mín. Takk fyrir að hlusta, takk fyrir öll skilaboðin og hlýleg orð í gegnum tíðina.”

Það var Edda Björgvinsdóttir leikkona sem hóf umræðuna á hollvinasíðu RÚV með eftirfarandi innleggi.

„Er einhver haldbær skýring á því að einn vandaðasti tónlistarþáttur Rásar tvö er tekinn af dagskrá? Það er heilmikið af rusl tónlistarþáttum sem fá áfram pláss hjá RÚV og það væri virkilega áhugavert að heyra hvað það var sem stjórnendum hugnaðist ekki við sérlega vönduð vinnubrögð Sölku.“

Þó að Edda hafi ekki fengið svar við spurningu sinni tóku margir undir með henni og furðuðu sig á ákvörðuninni.

„Ég mun sakna Sölku Sólar, góðir þættir og skemmtilegt lagaval,“ sagði til dæmis í einni athugasemd og fleiri tóku í svipaðan streng.

„Frekar skrítin ákvörðun hjá RÚV.“

„Skil þetta ekki.“

„Þetta er stó undarlegt, því þetta er virkilega góður þáttur.“

„Gjörsamlega galið.“

„Af hverju í ósköpunum er þessi þáttur tekinn af dagskrá? Salka Sól velur lög sem flestum líkar.“

„Þetta er fullkomlega óskiljanleg ákvörðun.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís