fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 15:30

Þór Thulinius. Mynd: Skjáskot YouTube.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Frumburðurinn, elsta dóttir mín hefur átt mjög erfitt með fíknisjúkdóma. Fyrst með átröskun, búlímíu og útlitsdýrkun, hún fór mjög langt í því. Hún byrjaði 13-14 ára og við vorum alltaf að reyna að hjálpa henni,“

segir Þór Tulinius leikari og leiðsögumaður í viðtali í Fullorðins.

Segir hann dóttur sína meðal annars hafa þurft að leita aðstoðar hjá Bugl og geðdeild LSH. Tók hún þátt í heimildarmynd þar sem hún sagði eigin reynslusögu.

„Þetta var mjög erfitt. Hún var alltaf að reyna að fá styrk. Það var gerð heimildarmynd um hana, ég var kominn í 12 spora kerfið og maður hélt að það myndi hjálpa henni ef hún gæfi af sér.“
Fíknin þróaðist í alkóhólisma.

„Hún á enn í stríði við það, því miður. En á stundum góða kafla en er enn ekki hólpin, ekki búin að finna lausnina.“

Aðspurður um hvernig hafi verið að sjá barnið sig glíma við átröskun segir Þór:

„Ég er mjög að vinna með meðvirknina. Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta. En þetta er fíkn, bara eins og alkóhólismi. Þetta eru boðefnatripp. Hún flakkaði á milli, byrjaði í búlimíu að kasta upp, en síðan alltaf smitaðist aðeins yfir í anorexíu að borða ekki eða að hlaupa og ganga og hreyfa sig. Svo hafði hún algjörlega blekkta sýn á sitt útlit og finnast fallegt þegar sést bara í rifbeinin. Heilastarfsemin verður svo brengluð, kannski af svengd en líka af þessu boðefnatrippi. Þú bara komst ekki inn, það virðist ekki neinn leið til að komast inn. Ekki fyrr en hann sjálfur [sá sem glímir við fíkn] finnur sinn botn einhvern veginn.“

Þór flutti til útlanda sem barn með foreldrum sínum og bjó í Frakklandi og Bandaríkjunum. Hann segir frá því, leiklistinni og mörgu fleira í þættinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu