fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Kynntist erlendum ferðamanni og hlustaði ekki á viðvörun foreldranna: „Ég var 18 ára og blinduð af ást“

Fókus
Mánudaginn 19. janúar 2026 11:30

Mynd/Pixabay/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrítug stelpa sem fæddist í Rússlandi er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman. Hún segist ekki koma fram undir nafni til að forðast vandræði sem gætu skapast í kjölfar umfjöllunarinnar, en hún hefur búið á Íslandi frá þriggja ára aldri. Hún verður hér eftir kölluð Katarina.

Katarina var þægilegt barn en féll ekki inn í hópinn hjá jafnöldrum sínum og var mikið skilin útundan og jafnvel hundsuð.

„Ég bjó fyrst í Grafarvogi og var í Rimaskóla. Ég og við fjölskyldan lentum í áreiti í hverfinu þar sem það var oft verið að kasta eggjum í gluggana og svoleiðis en ég var mikið ein og komst ekki inn í hópinn,” segir hún.

Í sjöunda bekk flutti fjölskyldan í Norðlingaholt og Katarina fór í skólann þar en félagslega gekk ekki betur. Átján ára kynntist hún ferðamanni frá Albaníu sem sagðist vera í Evrópuferðalagi en innan nokkurra daga hafði hann hætt við flugið sitt frá Íslandi og var hér alla 90 dagana sem hann mátti vera í fyrstu atrennu.

Blinduð af ást

Foreldrar Katarinu voru mjög ósáttir við sambandið og reyndu allt til að koma vitinu fyrir hana en án árangurs.

„Ég var 18 ára og blinduð af ást,“ segir hún.

Hún segir að fljótlega hafi andlegt ofbeldi, niðurrif og stjórnun (e. manipulation) hafist.

„Ef ég fór ekki eftir því sem hann sagði á meðan hann var úti, eftir þessa þrjá fyrstu mánuði, hótaði hann að hætta með mér og blokkaði mig á samfélagsmiðlum. Ég grét auðvitað og var miður mín og hann kom til baka og sagðist elska mig meira en foreldrar mínir,“ segir hún.

Hún sagði hann hafa sett henni strangar reglur og brugðist illa við ef hún braut þær.

„Ég mátti ekki fara í sund með foreldrum mínum eða bara gera neitt í rauninni,” segir hún.

Móðir hennar gat ekki horft upp á þetta

Katarina var í þessu ofbeldissambandi í átta ár en um einu og hálfu ári eftir að þau kynntust þá giftu þau sig svo hann fengi að vera á Íslandi.

Hún segir frá því hvernig hann stjórnaði henni og braut hana hægt en örugglega niður. „Til að byrja með bjuggum við hjá foreldrum mínum og mamma þurfti á endanum að segja mér að við þyrftum að flytja út vegna þess að hún gat ekki hlustað og horft upp á það hvernig hann kom fram við mig og gat stjórnað mér,“ segir hún.

Katarina segir einnig frá því hvernig fyrrverandi maðurinn hennar hafi breyst og orðið miklu strangtrúaðri múslimi eftir að bróðir hans flutti til landsins.

„Hann kom til landsins og giftist íslenskri konu en það var bara samkomulag þar sem sú kona fékk greitt. Það er töluvert um það hér á landi,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís