

Áhrifavaldurinn Minea Pagni er komin nóg af því að fólk gagnrýni ástarlíf hennar og þvertekur fyrir að hafa byrjað með eiginmanni sínum út af meintum auðæfum hans.
Pagni, sem er 22 ára gömul, er gift kennaranum Massimo sem er sextugur. Þau kynntust fyrst þegar Massimo kenndi henni heimspeki í gagnfræðaskóla. Þau fóru þó ekki að stinga saman nefjum fyrr en tveimur árum eftir að Pagni útskrifaðist. Leiðir þeirra lágu aftur saman fyrir tilviljun í bókabúð.
Fylgjendur Pagni hafa sakað hana um að vera gullgrafari (e. gold digger) því á einni mynd af parinu sást Massimo með Rolex úr.
„Að smætta ákvarðanir konu niður í peningafjárhæðir er ein elsta og ósanngjarna staðalmyndin. Ég hef mín eigin markmið, mína eigin vinnu og mitt eigið sjálfstæði. Ég giftist honum út af því hver hann er – fyrir hug hans, gildi og hvernig hann elskar,“ sagði Pagni í samtali við The New York Post á dögunum.
„Ég vissi að það myndu ekki allir skilja þetta en ég var óviðbúin því hversu öfgafull viðbrögðin yrðu,“ hélt hún áfram. Pagni segist hafa kolfallið fyrir greind Massimos og jákvæðu hugarfari. Hann sé með eindæmum forvitinn, laus við alla fordóma og elski lífið.
Hún viðurkenndi nýlega á Instagram að hafa verið skotin í Massimo þegar hann kenndi henni. Hún hafi þó ekki vogað sér að reyna við hann þar sem hann var kennari hennar. Þegar þau hittust eftir útskrift hafi staðan verið önnur. „Stundum er lífið glettið og færir fólk saman þegar það er loksins við hæfi.“
Hvað varðar Rolex-úrið þá segir Pagni að Massimo eigi tvö slík, hún gaf honum annað þeirra.