fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fókus

Óskarinn: Myndirnar sem hefðu átt að vinna en unnu ekki

Fókus
Þriðjudaginn 17. mars 2026 06:00

Pulp Fiction er ein þeirra mynda sem hefðu átt að vinna að mati Dan og Amy.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óskarsverðlaunahátíðin fór fram í fyrrinótt en líkt og alltaf eru skiptar skoðanir um hvort „réttar“ myndir eða leikarar hafi orðið fyrir valinu þegar kemur að stærstu verðlaununum.

Í aðdraganda hátíðarinnar skrifuðu tveir blaðamenn hjá The Washington Post, Dan Zak og Amy Argetsinger, grein sem vakti talsverða athygli. Í henni færa þau rök fyrir því að Óskarsverðlaunaakademían hafi oftar en ekki rangt fyrir sér þegar kemur að valinu á bestu myndinni.

Í sumum tilfellum taka þau undir með akademíunni en margar þeirra eru þó mjög ólíkar vali akademíunnar.

Blaðamennirnir hallast gjarnan að spennu- og ævintýramyndum sem höfða til breiðs áhorfendahóps fremur en listrænni og rólegri myndum sem oftar hafa hlotið náð fyrir augum dómnefndarinnar.

Á meðal þeirra tíu mynda sem þau telja að hefðu átt að vinna til verðlauna eru eftirfarandi:

  • 1975: Jaws (sigurvegari það ár var One Flew Over the Cuckoo’s Nest)
  • 1979: Apocalypse Now (sigurvegari: Kramer vs. Kramer)
  • 1981: Raiders of the Lost Ark (sigurvegari: Chariots of Fire)
  • 1985: Back to the Future (sigurvegari: Out of Africa)
  • 1990: Goodfellas (sigurvegari: Dances With Wolves)
  • 1994: Pulp Fiction (sigurvegari: Forrest Gump)
  • 1999: The Sixth Sense (sigurvegari: American Beauty)
  • 2003: Lost in Translation (sigurvegari: The Lord of the Rings: The Return of the King)
  • 2012: Skyfall (sigurvegari: Argo)
  • 2022: Top Gun: Maverick (sigurvegari: Everything Everywhere All at Once)
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Stutt upptaka úr Ring-myndavél setti af stað óvænta atburðarás

Stutt upptaka úr Ring-myndavél setti af stað óvænta atburðarás
Fókus
Fyrir 3 dögum

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“
Fókus
Fyrir 1 viku

Fallegasta stúlka í heimi er trúlofuð

Fallegasta stúlka í heimi er trúlofuð
Fókus
Fyrir 1 viku

Hólmfríður áttaði sig á þessu á fyrirlestri með eiginmanninum – „Hann bara talaði inn í hjartað á mér“

Hólmfríður áttaði sig á þessu á fyrirlestri með eiginmanninum – „Hann bara talaði inn í hjartað á mér“