fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fókus

Áslaug Arna fagnar ömmu sinni á stórafmæli – „Minn helsti stuðningsmaður“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 16. mars 2026 09:22

Elsa og Áslaug Arna. Mynd: Instagram.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðuramma Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, Elsa Pétursdóttir, varð níræð í gær, sunnudaginn 15. mars.

Í einlægri færslu á Instagram fagnar Áslaug Arna, sem nú er í búsett í New York ömmu sinni og segir hún hana sinn helsta stuðningsmann. Þær séu miklar vinkonur og hafi alltaf verið nánar, ekki síst eftir að móðir Áslaugar Örnu, Kristín Steinarsdóttir féll frá. Kristín lést árið 2012, þegar Áslaug Arna var 22 ára.

„Er plantan þín á lífi? Passar þjóðbúningurinn fyrir 17. júní? Geturðu sagt mér hvað er að gerast í pólitíkinni núna? Á ég að hjálpa þér á morgun? Ertu búin að sofa nóg?“

Þetta eru dæmi af spurningum sem Áslaug Arna segir ömmu sína hafa spurt hana að aftur og aftur síðustu ár. Hún segir ömmu sína ítrekað hafa létt undir með sér og verið henni innan handar í hversdagslegum verkefnum þegar þau fengu stundum að sitja á hakanum vegna anna.

„Það hefur ekki alltaf verið auðvelt að eiga barnabarn í pólitík, en þó henni hafi oft fundist nóg um álag, neikvæða eða erfiða umræðu þá er hún samt minn helsti stuðningsmaður. Hefur varla látið blaðagrein framhjá sér fara og ég er hrædd um að hirslurnar séu orðnar yfirfullar af úrklippum. Það eru dýrmæt símtölin og eftirminnileg þegar hún er með lista af málum sem hana langar að skilja eða vita meira um til að geta stutt mig betur á kaffistofunni eða í leikfiminni með eldri borgurum.“

Áslaug Arna rifjar upp að þegar hún var krakki saumaði Elsa amma hennar búninga í Íslensku óperunni. „Það var magnað að fá að sjá töfrana baksviðs og upplifa hvernig hún lifnaði við þegar listin var annars vegar. Amma var sjálf dansari og er það enn, hún fer dansandi inn í tíræðisaldurinn í dag.“

Hún segir þær frænkurnar ríkar að eiga þjóðbúninga í ýmsum stærðum þar sem Elsa hafi saumað á barnabörnin þjóðbúninga frá unga aldri, stelpurnar (barnabörnin) eru sex talsins.

„Bæði á lýðveldishátíðinni 1994, þegar ég var fjögurra ára, og á 1000 ára kristnihátíðinni þegar ég var tíu ára, skörtuðum við öll íslenska þjóðbúningnum. Það er einstakt að sjá langömmubörnin í þeim núna. Síðan ég tók sæti á Alþingi hefur hún mætt á hverjum 17. júní og gætt þess að allt sé eins og það á að vera þegar klæðast þarf búningnum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða
Fókus
Í gær

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi
Fókus
Fyrir 6 dögum

Uppselt á afmælistónleika Stefáns Hilmarssonar – Aukatónleikar degi síðar

Uppselt á afmælistónleika Stefáns Hilmarssonar – Aukatónleikar degi síðar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Skotárásin á heimili Rihönnu – Færslur á samfélagsmiðlum geranda sýna stórundarlega hegðun

Skotárásin á heimili Rihönnu – Færslur á samfélagsmiðlum geranda sýna stórundarlega hegðun
Fókus
Fyrir 1 viku

TikTok myndband segir að fólk fái tilkynningar þegar því er flett upp í Íslendingabók – En hvað er hið sanna?

TikTok myndband segir að fólk fái tilkynningar þegar því er flett upp í Íslendingabók – En hvað er hið sanna?
Fókus
Fyrir 1 viku

Klæddi sig í 24 bleyjur og dýfði sér í Thames fljót til að mótmæla – Fékk lífshættulegan sjúkdóm

Klæddi sig í 24 bleyjur og dýfði sér í Thames fljót til að mótmæla – Fékk lífshættulegan sjúkdóm