fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Útilokaðar frá Ascot vegna tengsla foreldranna við Epstein

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. mars 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bresku prinsessunum Beatrice og Eugenie hefur verið tilkynnt að þær geti ekki sótt Royal Ascot veðreiðarnar vegna tengsla foreldra þeirra við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein.

Aukin athygli hefur verið á foreldrum Beatrice og Eugenie, Andrew Mountbatten-Windsor og Sarah Ferguson, eftir að fyrrverandi prinsinn var handtekinn grunaður um misferli í opinberu starfi 19. febrúar.

Vegna hneykslismálsins var Beatrice og Eugenie sagt að þær gætu ekki sótt Royal Ascot í júní eða tekið þátt í konunglegu skrúðgöngunni með fjölskyldu sinni,. Beatrice (37) og Eugenie (35) eru að sögn breskra miðla undrandi vegna ákvörðunarinnar.

Daily Mail greinir frá því að Vilhjálmur prins og Katrín Middleton vilji halda þeim systrum í ákveðinni fjarlægð og að bannið sé hluti af víðtækari ákvörðun um að útiloka systurnar frá konunglegum viðburðum í framtíðinni. Vilhjálmur er sagður hafa ráðlagt öðrum konungsfjölskyldumeðlimum að birtast ekki á myndum með prinsessunum „það sem eftir er ársins.“

Eugenie sást á skíðum í Sviss aðeins nokkrum klukkustundum áður en faðir hennar var handtekinn. Hún sást njóta frís í svissneska frístaðnum Gstaad með eiginmanni sínum, Jack Brooksbank, tveimur börnum þeirra, barnapíu og hópi náinna vina. Sjónarvottur sagði við Hello!: „Ég varð hissa að sjá hana því ég hélt að hún myndi halda sig utan sviðsljóssins í ljósi alls sem hefur verið í gangi.“

Á sama tíma er móðir systranna nú einnig sögð vera í Sviss þar sem tengsl hennar við Epstein eru í auknum mæli skoðuð. Ferguson (66)  skráði sig inn á Paracelsus Recovery Clinic í Zürich, að því er Daily Mail greindi frá, sem kostar að sögn yfir 17.500 dali á nótt.

Andrew var handtekinn á 66 ára afmælisdegi sínum fyrir að hafa sent Epstein trúnaðarskjöl. Ef hann verður fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.

Ferguson gæti átt yfir höfði sér spurningar frá lögreglunni í Thames Valley, sem handtók Andrew, ef hún snýr aftur til Bretlands. Þó að engar sannanir séu fyrir neinum refsiverðum brotum Ferguson, „gæti lögreglan haft ástæðu til að yfirheyra Söruh Ferguson [þar sem] hún gæti verið viðeigandi vitni í þessu máli.“

Ferguson, sem skildi við Andrew síðan 1996, var svipt hertogaynjutitlinum af York í kjölfar Epstein-hneykslisins í október 2025.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís