fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Kim Kardashian í eldheitu ástarsambandi með heimsfrægum kærasta

Fókus
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 07:30

Kim Kardashian. Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er farin að slá sér upp með breska F1-ökuþórnum, Lewis Hamilton, margföldum heimsmeistara. Kim, sem er 45 ára gömul og Hamilton, 41 árs, eru sögð hafa átt sjóðheita helgi saman á fimm stjörnu lúxushóteli, Le Bristol, nærri samnefndri borg þar sem þau skelltu sér í paranudd og áttu rómantískan kvöldverð.

Bæði eru óumdeilanlega í hópi frægustu einstaklinga samtímans og halda breskir og bandarískir miðlar vart vatni yfir tíðindunum.

Hamilton  og Kardashian hafa þekkst lengi og var talsverður vinskapur milli ökuþórsins og rapparans Kanye West, fyrrum eiginmanns Kardashian. Bauð West meðal annars Hamilton að verja páskunum með fjölskyldunni árið 2015.

Lewis Hamilton. Mynd/AP

Óvíst er hversu alvarlegt samband vinanna er en á meðan Kardashian er fjögurra barna móðir hefur Hamilton ekki viljað festa ráð sitt né eignast börn þrátt fyrir að hafa verið í tygjum við fjölmargar heimsþekktar konur í gegnum árin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu