Bandaríski áhrifavaldurinn Brian Johnson, betur þekktur sem „Liver King“, hefur verið handtekinn í Texas eftir að hafa hótað hlaðvarpsstjörnunni Joe Rogan og freistað þess að ræða við hann „undir fjögur augu“. Handtakan kemur í kjölfar ógnandi myndskeiða þar sem Johnson sagðist ætla að „láta Rogan borga“ og lét ýmis ókvæðisorð falla um hlaðvarpsmógúlinn umdeilda.
Myndband, sem fór sem eldur í sinu á Twitter og Instagram, sýnir Liver King handjárnaðan og leiddan að lögreglubíl. Hann var þá í vesti yfir hettupeysu og virtist illa til reika. Samkvæmt upplýsingum frá NBC-sjónvarpsstöðinni KXAN-TV í Texas var Johnson vistaður í gæsluvarðhaldi án möguleika á tryggingu að kvöldi þriðjudagsins.
Liver King, sem hefur byggt upp gríðarlegan fylgjendahóp á samfélagsmiðlum með áherslu sinni á hrátt kjöt, vöðva og „primal“ lífsstíl, hefur síðan verið kærður fyrir hryðjuverkaógn (e. terroristic threat) gagnvart Rogan.
Rogan og Johnson hafa átt í opinberum deilum síðan árið 2022 í kjölfar þess að tölvupóstum var lekið sem sýndu fram á að Johnson eyddi tugþúsundum dollara í stera, eitthvað sem rímaði illa við ímynd hans sem fulltrúi náttúrulegs lífsstíls og mataræðis sem byggðist aðallega á hráu kjöti og innmat.
Rogan fjallaði um tölvupóstanna í þætti sínum og sagði að innihald þeirra kæmi honum ekki beint á óvart. Það væri „óhugsandi að líta svona út á fertugsaldri án utanaðkomandi aðstoðar“ og kallaði Liver King „fáránlegt vöðvabúnt“. Í kjölfar þess var Liver King gagnrýndur víða fyrir blekkingar gagnvart fylgjendum sínum.
Hvorki Liver King né Rogan hafa tjáð sig um málið en sá fyrrnefndi gæti átt yfir sér allt að 10 ára fangelsisrefsingu vegna málsins.