fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Ísak um atvik í IKEA: „Það tók mig svona 40 sekúndur að ná tökum á aðstæðum eftir að ósköpin dundu yfir“

Fókus
Miðvikudaginn 25. júní 2025 13:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísak Hilmarsson, þriggja barna faðir, lenti í miður skemmtilegu atviki í IKEA á dögunum og hvetur fólk til að hjálpa frekar en að dæma þegar það verður vitni að slíku.

„Ég var [í IKEA] með fjölskyldunni og alls ekki undirbúinn fyrir þetta, en það er nú yfirleitt þannig þegar þetta gerist. Þetta kemur öllum í opna skjöldu í hvert sinn. Við vorum nýbúin að setjast á veitingastaðnum, búin að koma okkur vel fyrir og tilbúin að byrja að borða. Þá gerist það algjörlega upp úr þurru! Það tók mig svona 40 sekúndur að ná tökum á aðstæðum eftir að ósköpin dundu yfir. Ég bað börnin um að sitja kyrr og sagði konunni minni að ég myndi bjarga þessu,“ segir hann í pistli á Vísi.

„Þau stóðu sig mjög vel í þessum aðstæðum og ég er þakklátur fyrir það. Mér tókst að græja þetta bara nokkuð snyrtilega fannst mér. Eftir að ég hafði náð tökum á aðstæðunum leit ég í kringum mig og sá dæmandi augnaráðið frá fólki úr öllum áttum. Ég sagði börnunum strax að allt væri í lagi og að þetta komi fyrir besta fólk. Einhvern veginn er þetta samt alveg ferlegt feimnismál í okkar samfélagi. Ég ætla ekki að leyna því að ég var smá tíma að ná mér alveg niður eftir atvikið.“

Það sem gerðist var að eitt barna Ísaks hellti niður í matsal IKEA og snýst pistillinn um viðbrögð frá fólki þegar það hellir niður.

„Ég hef séð fjöldann allan af fólki bregðast við niðurhellingu á alveg stórkostlega skrýtinn hátt. Öskrað á börn og þeim sagt að vanda sig betur þegar hellt er í glös. Ég hef meira að segja séð matarboð breytast eftir að gestkomandi hellti hressilega niður og það var nákvæmlega ekkert sem breyttist annað en að hálft ódýrt rauðvínsglas fór í dúkinn.“

Ísak segir að hann hafi sjálfur einu sinni skammað börnin fyrir að hella niður, en nú bregst hann öðruvísi við. Hann hvetur fólk til að gera það sama og ef það verður vitni að einhverjum hella niður að rétta servíettu frekar en að stara.

„Ég hvet ykkur því kæru lesendur að reyna að hemja ykkur næst þegar þig verðið vitni að því að einhver hellir niður. Eins bið ég ykkur um að vera sérstaklega tillitsöm þegar börn eiga í hlut, þau eru bara að æfa sig og reyna að bjarga sér með því að hella sjálf. Það getur alveg hjálpað til að ota servíettu að þeim sem í þessu óhappi lendir frekar en að bjóða eingöngu upp á dæmandi augnaráðið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nýir Netflix-þættir vekja athygli fyrir djarfar kynlífssenur

Nýir Netflix-þættir vekja athygli fyrir djarfar kynlífssenur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ef þú þorir er lag um það að taka fyrsta skrefið

Ef þú þorir er lag um það að taka fyrsta skrefið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Secret Solstice gengur í endurnýjun lífdaga – Alþjóðleg sólmyrkvahátið 2026

Secret Solstice gengur í endurnýjun lífdaga – Alþjóðleg sólmyrkvahátið 2026
Fókus
Fyrir 5 dögum

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra