fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

„Heilbrigður“ 29 ára faðir vaknaði með kviðverk – Nokkrum vikum síðar var hann látinn og fjölskylda hans varar aðra við

Fókus
Miðvikudaginn 25. júní 2025 09:30

Dylan Thomas. Myndir/Nathan Lamb

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andlát þriggja barna föður, sem var álitinn heilbrigður 29 ára einstaklingur, hefur vakið mikinn óhug og varpar ljósi á lífshættulegar afleiðingar reglubundinnar ofdrykkju áfengis.

Dylan Thomas Wakefield frá East Yorkshire vaknaði með „stöðugan stingandi verk“ í efri hluta kviðar, vinstra megin, þann 24. apríl síðastliðinn.

Hann keyrði sig sjálfur á sjúkrahús þar sem hann var fyrst greindur með magabólgu. En nokkrum klukkustundum kom í ljós að um væri að ræða bráða brisbólgu.

Einkenni bráðrar brisbólgu eru meðal annars ógleði og uppköst, hiti, hraður hjartsláttur og kviðverkur. Algeng orsök er langvarandi eða mikil neysla áfengis.

Á vef Doktor.is kemur fram að flestir einstaklingar með bráða brisbólgu ná sér að fullu eftir að þeir fá rétta meðferð. Í alvarlegri tilfellum, getur bráð brisbólga valdið blæðingum, vefjaskaða og sýkingum. Alvarleg brisbólga getur einnig haft áhrif á önnur mikilvæg líffæri eins og hjarta, lungu og nýru.

DailyMail greinir frá sögu Dylan og þó það sé ekki búið að staðfesta hvað hafi orsakað brisbólguna telur bróðir hans, Nathan Lamb, óhófa áfengisneyslu vera sökudólginn.

„Dylan fannst gott að drekka, en hann var bara 29 ára. Maður heldur að svona gerist ekki fyrr en seinna á lífsleiðinni,“ sagði hann í samtali við miðilinn.

„Hann átti allt lífið fram undan, þetta er svo ósanngjarnt.“

Bræðurnir.

Dylan var lagður inn á sjúkrahús og fékk viðeigandi meðferð og virtist vera á bataleið. En þremur vikum síðar versnaði ástand hans og lést hann þann 28. maí.

„Þetta var mikið áfall. Við bjuggumst ekki við að hann myndi deyja úr þessu,“ sagði bróðir hans.

Eins og fyrr segir hefur málið vakið mikinn óhug, samkvæmt nýjustu tölum frá Bresku hagstofunni (ONS) eru áfengistengd dauðsföll nú í sögulegu hámarki.

„Frá alda­mót­um hef­ur orðið sjö­föld­un á áfengistengd­um lifr­ar­sjúk­dóm­um á Íslandi, þar á meðal bólg­um og skorpu­lif­ur,“ sagði framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, Valgerður Rúnarsdóttir, í samtali við Mbl í nóvember í fyrra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Bianca Censori í nærfötum úr nammi á götum New York

Bianca Censori í nærfötum úr nammi á götum New York
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikkonan kemur sambandinu til varnar – Nýja kærastan 18 árum yngri

Leikkonan kemur sambandinu til varnar – Nýja kærastan 18 árum yngri