Ellý notaði ákveðna græju, eins konar orkupendúla en í samtali við DV segir hún að þeir grípa orkutíðnina og svara. Hún heldur á sitthvorum pendúlnum í höndunum og spyr spurninga, annað hvort vísa pendúlarnir inn, sem merkir já, eða út, sem merkir nei. Ef þeir standa í stað þá er ekkert svar.
Ellý spurði: „Verður gott veður í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina?“
Pendúlarnir færðust að hvor öðrum og svarið var því: „Já.“
Hún spurði einnig hvort það yrði sól á þessum tíma í Eyjum, og svarið var aftur já.
Það eru samt vondar fréttir fyrir fólk sem ætlar á Kótelettuna, sem verður haldin á Selfossi þann 10. til 13. júlí. Veðrið verður ekki gott samkvæmt pendúlunum.
Horfðu á myndbandið hér að neðan, smelltu hér ef þú sérð ekki færsluna hér að neðan eða prófaðu að endurhlaða síðuna.
View this post on Instagram
Ellý spurði einnig út hvort Pepsi Max væri hollt eða ekki, og hvort Guðmundar- og Geirfinnsmálið væri leyst, og svarið við því var: Nei.
Ellý var gestur í áramótaþætti Fókuss, spjallþætti DV, þar sem hún spáði fyrir þekktum einstaklingum og svaraði nokkrum spurningum um árið 2025.