fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fókus

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“

Fókus
Mánudaginn 23. júní 2025 08:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Marý er 28 ára stelpa úr Hafnarfirði sem hefur upplifað svörtustu hliðar íslensk samfélags. Hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.

„Ég var ekki bjartasta vonin,“ segir hún um sjálfa sig þegar hún gekk inn á Krýsuvík í sína síðustu meðferð en í dag hefur hún verið edrú og í bata frá fíknisjúkdómi í rúmt ár. „Ég er frjáls í fyrsta skipti.“

Náin mömmu sinni

Móðir Evu var aðeins fimmtán ára þegar hún eignaðist hana, þær mæðgur voru afar nánar.

„Mamma var búin að eignast fallegt líf, orðin edrú og komin með töluvert langan edrú tíma þegar hún varð bráðkvödd,“ segir Eva.

Þrátt fyrir mjög mörg og þung áföll var fráfall móður hennar það allra erfiðasta og það sem setti allt á hliðina hjá Evu.

Töff og spennandi að fikta

Eva Marý ólst upp bæði hjá ömmu og afa og einnig ein með móður sinni. Faðir hennar var ekki mikið inni í lífi hennar sem barn og unglingur. Unglingsárin voru flókin og hún var á milli þess að velja að vera með krökkunum sem voru að fikta í neyslu og þeim sem voru það ekki.

„Ég viðurkenni að mér fannst þetta líka bara töff og spennandi,“ segir hún.

Hún rifjar upp þegar hún prófaði ákveðið efni í fyrsta skipti, í framhaldsskóla, það var partý.

„Ég elskaði þetta. Þáverandi kærastinn minn sagði mér daginn eftir að ég þyrfti að velja á milli hans eða að gera þetta, það hafi eitthvað breyst í mér við að taka þetta,“ segir hún.

„Þetta var samt bara partýefni og ég átti eftir að fara miklu neðar seinna en stóð við að velja hann á meðan við vorum saman.“

„Eftir að mamma dó fór ég í morfínlyf aftur“

Eva fór seinna í annað samband sem hún segir að hafi einkennst af neyslu og ofbeldi. Hún segir að hún hafi verið oft mjög illa farin og endað á bráðamótttöku. Á þessum tíma komst móðir hennar að því að hún væri að nota morfínlyf.

„Mamma varð svo miður sín og lét mig lofa sér að nota þetta ekki, hún var svo hrædd um mig, hún vissi alveg að það væri einhver neysla en ekki svona samt.“

„Eftir að mamma dó fór ég í morfínlyf aftur og upplifði mig svo eina, þrátt fyrir að amma og afi væru líka að syrgja dóttur sína.“

Var í tjaldi í Öskjuhlíðinni

Eva endaði á götunni og í Konukoti, en hún segir að hún hafi ekki upplifað sig örugga þar og hafi frekar viljað vera í tjaldi í Öskjuhlíðinni.

„Ég lenti í því að verða fyrir árás þar sem endaði með að ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig í tjaldinu,“ segir hún.

„Það endaði með því að ég var kærð fyrir vopnalagabrot, fyrir að hafa þetta á mér til að geta varið mig gegn meira ofbeldi.“

Tengdist föður sínum

Eftir andlát móður Evu kom faðir hennar inn í líf hennar og urðu þau feðgin náin á fullorðinsárum, allt þar til hann varð bráðkvaddur.

Fyrir rúmlega ári síðan komst Eva inn á Krýsuvík. „Ég braut reglur eða var á gráu svæði þegar kom að reglum því að ég kunni ekki betur, til að byrja með,“ segir hún.

Til að byrja með voru sex mánuðir eins og heil eilífð í augum Evu.

„Í þessari meðferð er manni kennt að takast á við lífið, áföllin sín og að fara aftur út í lífið. Ég á Krýsuvík lífið mitt að þakka.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarnan rokkar í agnarsmáu eldrauðu bikiní

Samfélagsmiðlastjarnan rokkar í agnarsmáu eldrauðu bikiní
Fókus
Fyrir 6 dögum

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins
Fókus
Fyrir 6 dögum

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?
Fókus
Fyrir 1 viku

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 1 viku

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga