

Eitt vinsælasta lesefni miðla vestanhafs er fyrirhugað brúðkaup tónlistarkonunnar Taylor Swift og hafnaboltaleikmannsins Travis Kelce. Enda ekki að furða, hún er ein vinsælasta tónlistarkona heims og ein umtalaðasta kona síðustu ára og hafa ástarsambönd ítrekað ratað á síður slúðurmiðla og það sem er enn betra: í ódauðleg lög og texta hennar.

Byrjum á brúðkaupsdeginum sem er táknrænn.
Margar heimildir herma að parið ætli að gifta sig laugardaginn 13. júní 2026, sem er tölulega þýðingarmikið fyrir Swift.
Uppáhaldstalan hjá Swift er 13, en við nánari greiningu má sjá að það gæti meiri táknræn merking við dagsetninguna. Upp á bandarískan máta er hún skrifuð sem 6/13/26. Séu tölurnar lagðar saman fáum við út 18 og og einn plús átta eru 9. Í talnaspeki er talan 9 talin kyngimögnuð heillatala og hún snýst um lok eins hrings, sem skapar möguleika á að annar hringur hefjist í umbreytingarferli. Í heiðni var talan álitin heilög tala og tengdist helgisiðum.
Parið trúlofaði sig í ágúst og var greint frá því í september að þau myndu gifta sig næsta sumar vegna þess að Swift vildi drífa sig að fara að eignast börn. Í síðasta mánuði var sagt að parið væri að endurskoða upphaflega áætlun sína, sem var að halda náið brúðkaup fyrir fjölskyldumeðlimi og nána vini. Eftir að hafa farið yfir gestalistann áttuðu þau sig á því að hann væri langur og meira pláss þyrfti fyrir veisluhöldin.

Næst er það staðsetning athafnar og veislu
Upphaflega var hugmyndin að athöfnin færi fram í villu Swift á Rhode Island, það þótti ekki hentugt og því hafði parið augastað á lúxushótelinu Ocean Hill sem er ekki langt frá. Þar mun annað par hafa verið með hótelið bókað þann 13.jJúní fyrir sitt brúðkaup. Swift var svo staðráðin í að ganga í hjónaband á þessum sérstaka degi að hún er sögð hafa opnað veskið og gert hinni tilvonandi brúðinni tilboð um háa fjárhæð sem hún gaf ekki hafnað.
Söng- og leikkonan Selena Gomez og fyrirsætan Gigi Hadid verða brúðarmeyjar.

Ocean House er þekkt fyrir að hafa hlotið þrefalda Forbes fimm stjörnu einkunn fyrir dvalarstað sinn, Ocean & Harvest Spa og fína veitingastaðinn COAST. Fimm stjörnu einkunnin byggist á framúrskarandi þjónustu, lúxusaðstöðu og að gististaðurinn uppfyllir strangar kröfur um smáatriði, gæði og fagmennsku.
Þessi eftirsótta viðurkenning er hæsta einkunn sem veitt er fyrir hótel sem býður upp á fullkominn lúxus, framúrskarandi þjónustu og nákvæma, persónulega umönnun.
Herbergin kosta frá 660 dölum og upp í 1.000 dali fyrir hverja nótt, svíturnar geta kostað allt að 7.000 dali nóttin og penthousesvítan fæst fyrir rúmlega 10.000 dali hver nótt.
Hótelið er í viktoríönskum stíl, þekkt fyrir byggingarlist og einkennandi gula klæðningu, og býður upp á 49 herbergi og 23 sérsvítur. Herbergin eru með sérsmíðuðum viðarhúsgögnum og listaverkum frá fyrri tíð frá Nýja-Englandi, en eru nútímaleg með þráðlausu interneti, þjóni á gólfinu og flatskjásjónvörpum. Svíturnar eru með stórri stofu með arinn úr strandsteini og einkaverönd með útsýni yfir Watch Hill Village.
Þægindi fyrir gesti felast meðal annars í ókeypis samgöngum í einkabílum hótelsins, sem og veitingaþjónustu. Ókeypis afþreying er á hótelinu, þar á meðal jóga, matreiðslunámskeið, rafrænir golftímar, listaferðir og fleira.
Hótelið býður upp á fimm mismunandi veitingastaði, allt frá fínni matargerð til afslappaðrar strandmatargerðar.
Meðal valkosta eru Ocean House, klassískur amerískur bistro; COAST, fínn veitingastaður sem notar ferskt, árstíðabundið hráefni; Verandah Raw Bar; sjávarréttastaður; Théa at Dune Cottage, strandveitingastaður sem er ætlaður gestum og meðlimum hótelsins; og Dalia, sem býður upp á spænska tapas, vín og kokteila.
