Kvikmyndasafn Íslands hefur birt myndband sem var tekið á gatnamótum Lækjargötu og Austurstrætis árið 1946. Um er að ræða svipmyndir úr fyrri hluta kvikmyndar Óskars Gíslasonar; Reykjavík vorra daga, sem var frumsýnd í Tjarnarbíó árið 1947.
Kvikmyndasafnið segir að myndin þótti helst til of löng fyrir margt samtímafólk. Sumir gagnrýnendur vildu skera hana niður um helming. Sem betur fer var það ekki gert því gagnrýnendur reyndust einnig sannspáir um að kvikmyndin yrði í framtíðinni ómetanlegur menningarfjarsjóður og heimild um breytta tíma.
Víkverji Morgunblaðsins skrifaði um kvikmyndina þann 2. febrúar árið 1947, skömmu eftir frumsýningu: „Já, það eru gullfallegar myndir í „Reykjavík vorra daga“ og það er nú einhvernveginn þannig, að m enn sjá ekki þá fegurð, sem þeir búa við daglega og þurfa því að fara í bíó til að sjá borgina sína í eðlilegum litum. En menn geta haft gott af því að fara í bíó til að sjá hve margt fagurt er til hjer við höfuðstaðinn og síðan njóta fegurðarinnar af eigin reynd.“