Svona hefst bréf karlmanns til sambands- og kynlífsráðgjafa The Sun, Sally Land, sem skrifar fyrir fræga dálkinn, Dear Deidre.
„Þetta er að skapa vandamál hjá okkur og ég er farinn að sjá að tólf ára aldursmunurinn á milli okkar er stærra vandamál en ég hélt í upphafi.“
Maðurinn er 40 ára og konan hans er 28 ára. Þau kynntust í partýi fyrir fimm árum.
„Í byrjun hélt ég að aldursmunurinn skipti engu máli. Ég virka ekkert mikið eldri en hún útlitslega og við áttum nóg sameiginlegt til að tala um. Hún var hrifin af því að ég var þroskaðri en menn á hennar aldri, að ég væri tilbúinn að skuldbinda mig.
En undanfarið hefur þetta aldursbil verið meira áberandi. Hún hefur meiri orku en ég eftir vinnu og vill ekki vera heima. Flestar vinkonur hennar eru einhleypar og miklir djammarar.
Flestir vinir mínir eru með ung börn og mikla ábyrgð. Ég vil eignast börn áður en ég verð of gamall, en ég veit að hún er alls ekki tilbúin í það.
Hún vill líka stunda kynlíf á hverju kvöldi, stundum nokkrum sinnum á einu kvöldi, en ég hef hvorki löngun né getu til þess lengur.“
Maðurinn segir frá nýlegu rifrildi, þegar hann vildi deila vínflösku heima en hún vildi fara á nýjan skemmtistað.
„Hún sagði að ég væri orðinn leiðinlegur gamall karl. Ég sagði að hún hagaði sér eins og unglingur.
Hún endaði með að fara út án mín og kom ölvuð heim klukkan fimm um morguninn. Við höfum varla talað saman síðan.
Ég elska hana út af lífinu en ég velti því fyrir mér hvort sambandið okkar sé dauðadæmt.“
„Öll pör ganga í gegnum erfitt tímabil en ef þið elskið hvort annað þá getið þið komist yfir þetta, en þið þurfið að tala saman. Kannski þurfið þið að sætta ykkur við að áhugasvið ykkar eru ólík núna og gera málamiðlanir.
Eins og að hún fái að fara út á lífið af og til, án þess að þú verður pirraður. Og sum kvöldin þarf hún að vera heima með þér, að kúra í sófanum, án þess að kvarta yfir að það sé leiðinlegt.
Það er hollt fyrir pör að eiga eigin vini og áhugamál.
En barneignirnar eru flóknara vandamál. Þið þurfið að tala um það frekar en að forðast umræðuefnið.“