Samkvæmt gögnum frá Sjúkratryggingum Íslands, sem Morgunblaðið kallaði eftir í lok árs í fyrra, voru rúmlega 18 þúsund manns á Íslandi á Ozempic og Wegovy í fyrra, sem eru svipuð lyf og Mounjaro. En helsti munurinn er virka efnið í lyfinu. Ozempic og Wegovy innihalda virka efnið semaglutide en Mounjaro inniheldur tirzepatide.
Sjá einnig: Hætti á Ozempic og byrjaði á Mounjaro – Upplifði óvænta en jákvæða aukaverkun
Breska móðirin Ellen Ogley, 42 ára, léttist um 38 kíló með aðstoð Mounjaro. Fyrir þann tíma hafði hún glímt við mikil veikindi. Hún greindist með legháls- og eggjastokkakrabbamein og segir í samtali við LadBible að hún hafi notað skyndibita og áfengi sem bjargráð.
Árið 2023 fékk Ellen góðar fréttir frá læknum og ákvað þá að taka stjórn á heilsunni. Hún vildi gangast undir svuntuaðgerð en þurfti að léttast fyrir það. Hún byrjaði á því að taka mataræðið í gegn og fasta samhliða. Það gekk vel og fór hún í svuntuaðgerðina í febrúar 2024. Gún var ákveðin að halda áfram að léttast, en það gekk illa.
Ellen byrjaði á Mounjaro í maí 2024 og byrjaði á sama tíma að stunda þolæfingar.
Eftir að hafa náð að missa rúmlega 38 kíló hætti Ellen á lyfinu og hefur síðan þá tekist að viðhalda þyngdartapinu. Hún segist vilja vara aðra við sem byrja á lyfinu og halda að þarna sé lausnin komin og að lyfið eitt og sér muni breyta öllu.
„Ef þú notar Mounjaro skaltu ekki búast við því að lyfið geri allt fyrir þig. Þetta er ekki töfralausn, þetta er byrjunarreitur. Þú þarft samt að breyta venjum þínum, hugarfari og hvernig þú kemur fram við líkamann. Það er það sem gerir þetta að langvarandi lausn,“ segir Ellen.
„Ég vildi tryggja að ég yrði ekki háð Mounjaro. Ég notaði þetta sem verkfæri og ég vil gefa öðrum von að þeir geti gert slíkt hið sama.“
Eins og fyrr segir var mataræðið eitt af því sem Ellen breytti og sýnir hún muninn á því sem hún borðaði þá og nú.
Morgunmatur: Ekkert
Hádegismatur: Bökuð kartefla með osti og baunum
Kvöldmatur: Pastaréttur, eplabaka með vanillusósu
Snarl: Pakki af kexi og smákökur
Morgunmatur: Grísk jógúrt með berjum og granóla eða kaldan hafragraut (overnight oats)
Hádegismatur: Kjúklingasalat
Kvöldmatur: Kjúklingur og sætkartöflufranskar eða tortillu pítsa
Sjá einnig: Birtir mynd eftir rúm tvö ár á Mounjaro – „Ég trúi ekki að þetta sé ég núna“
Niðurstöður nýrrar langtímarannsóknar á vegum Oxford-háskóla sýna að það sé líklegt að einstaklingar sem hætta notkun á þyngdarstjórnunarlyfi, eins og Ozempic, muni þyngjast aftur, og hraðar en áður.
Susan Jebb, aðalhöfundur rannsóknarinnar, sagði:
„Þessi lyf eru mjög áhrifarík til þyngdartaps, en þyngdin kemur aftur mun hraðar til baka þegar þú hættir á lyfjunum, hraðar en eftir hefðbundna megrun. Við verðum að spyrja okkur hvort það sé þess virði fyrir NHS (breska heilbrigðiskerfið) að fjárfesta í þessum lyfjum ef fólk tekur þau aðeins í stuttan tíma og bætir svo öllu aftur á sig.“
Jebb lagði áherslu á að annað hvort þyrfti fólk að samþykkja að þetta væri ævilöng meðferð, það er, að það þyrfti að vera á lyfjunum alla ævi, eða að vísindasamfélagið þyrfti að þróa betri leiðir til að styðja fólk eftir að lyfjameðferð lýkur. „Við þurfum að hugsa mjög vel hvernig við getum stutt einstaklinga þegar þeir hætta á lyfinu.“