Leikarinn, sem er orðinn 78 ára, var staddur á Washington State Summer Con-aðdáendaviðburðinum þegar hann beit meðleikara sinn úr þáttunum, Aliciu Hannah-Kim, í höndina.
Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að Alicia hafi gengið upp að leikaranum og ætlað að heilsa honum en hann brugðist við með því að taka í hönd hennar og bíta hana í handarbakið. Mun Alicia hafa verið með sýnilega áverka eftir bitið.
Martin segir að um grín hafi verið að ræða sem ef til vill gekk of langt. Þau hefðu oft farið í gamnislag við tökur á settinu en hann taldi atvikið ekki alvarlegt.
Alicia hafði engu að síður samband við lögreglu sem mætti á svæðið og tók skýrslu. Að því búnu var Martin beðinn um að yfirgefa svæðið.
Alicia ákvað að leggja ekki fram kæru en fékk þó áverkavottorð til öryggis.
Í yfirlýsingu sem Martin sendi frá sér sagðist hann iðrast gjörða sinna og bað hann Aliciu innilegrar afsökunar.
„Hún er góð og yndisleg manneskja og átti þetta ekki skilið. Ég meinti þetta sem saklaust grín en gekk of langt og það er engin afsökun fyrir hegðun minni. Ég tek fulla ábyrgð.“