fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Frýs blæs nýju lífi í Trúbrot klassíkina Án þín

Fókus
Miðvikudaginn 25. júní 2025 15:39

Frýs: Frýs á myndinni eru Daníel Sveinn Jörundsson, Haukur Lár Hauksson og Brynjar Karl Birgisson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný ábreiða frá hljómsveitinni Frýs hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum og meðal tónlistarunnenda, en sveitin hefur nú sent frá sér ábreiðu af smellinum Án þín, sem Trúbrot gerði upphaflega frægt hér á landi árið 1969.

Frýs er ung og efnileg rokksveit sem sló í gegn á Músíktilraunum 2024 þar sem sveitin var valin „Hljómsveit fólksins“ í símakosningu. Sveitin hefur síðan þá unnið að sinni fyrstu breiðskífu og gefið út smáskífurnar All That You Are og Meet You In The Dark fyrr á árinu.

Útgáfa Frýs af Án þín er kraftmikil og þétt í hljómi, trommur og bassi mynda öflugan grunn, á meðan syntar og rödd Daníels Sveins Jörundssonar skapar drifkraft sem talar bæði til nýrra og eldri hlustenda. Þetta er ekki róleg endurgerð heldur nútímaleg túlkun án þess að glata sjarmanum. Útkoman er bæði kunnugleg og ný, eins konar brú milli kynslóða íslenskra tónlistarunnenda.

Um Frýs

Frýs er fimm manna rokksveit frá Reykjavík og samanstendur af Daníel Sveini Jörundssyni söngvara, Hauki Lár Haukssyni á gítar, Birni Mána Björnssyni á hljómborð, Brynjari Karli Birgissyni á bassa og Rafael Róbert Símonarsyni sem leikur á trommur.

Frýs vakti verðskuldaða athygli á Músíktilraunum 2024 þar sem þeir voru valdir Hljómsveit fólksins í símakosningu.

Tónlist þeirra er lýst sem blöndu af klassísku rokki og síkadelískum áhrifum og hefur sveitinni verið líkt við bönd á borð við Red Hot Chili Peppers, Jet Black Joe og jafnvel Led Zeppelin. Gagnrýnendur hafa hrósað þeim fyrir metnaðarfulla lagasmíði, þéttan hljóðfæraleik og flóknar útsetningar sem gefur tónlist þeirra mikla dýpt og kraft.

Án þín er nú komið á allar helstu streymisveitur.

Frýs var valin Hljómsveit fólksins í símakosningu 2024
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Það er kominn tími til að hrista aðeins upp í fasteignamarkaðinum“

„Það er kominn tími til að hrista aðeins upp í fasteignamarkaðinum“
Fókus
Í gær

Tanja Ýr veltir fyrir sér hvort heilbrigðisstarfsmaður hafi lekið upplýsingunum í fjölmiðla

Tanja Ýr veltir fyrir sér hvort heilbrigðisstarfsmaður hafi lekið upplýsingunum í fjölmiðla
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ