fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fókus

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra

Fókus
Föstudaginn 20. júní 2025 09:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Justin Baldoni fær að hnýsast í einkaskilaboð leikkonunnar Blake Lively og tónlistarkonunnar Taylor Swift, en dómari telur að þessi samskipti geti skipt máli í málaferlum leikaranna.

Leikararnir takast nú á fyrir dómstólum um hvort þeirra varð fyrir ófrægingarherferð í tengslum við kvikmyndina It Ends With Us, en Lively segir að Baldoni hafi fengið almannatengslafyrirtæki til að rústa mannorði hennar til að hylma yfir kynferðislega áreitni sem hann beitti hana á tökustað myndarinnar. Baldoni segir að sama bragði að Lively og eiginmaður hennar, leikarinn Ryan Reynolds, hafi tjaldað öllu til að rústa hans mannorði til að hefna fyrir slæma útreið sem Lively fékk í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum í tengslum við kvikmyndina.

Lively hafði krafist þess að einkasamskipti hennar og Swift yrðu undanskilin gagnaöflun í málinu, en dómari hefur nú hafnað þeirri kröfu. Hins vegar kom dómari til móts við leikonuna með sérstökum úrskurði um að trúnaður ríki um samtalið og er Baldoni meinað að leka samtalinu til fjölmiðla.

„Lively hefur sjálf nefnt Swift sem aðila sem gæti haft vitneskju um kvartanir eða umræður í tengslum við vinnuumhverfið á tökustað It Ends With Us,“ sagði dómarinn í úrskurði sínum á miðvikudaginn.

Þar með gætu samskiptin varpað ljósi á það hvort ásakanir Lively um áreitni eigi við rök að styðjast eða ásakanir Baldoni um hefndaraðgerðir.

Sjá einnig: Ævintýralegt drama í Hollywood – Kærurnar ganga á víxl með ásökunum um ófrægingarherferð og óboðlega framkomu

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins

Slær í gegn á samfélagsmiðlum þar sem hann heilsar holum landsins
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 1 viku

Fyrrverandi kærastan rýfur loksins þögnina um framhjáhaldsorðróminn – „Ég var niðurbrotin“

Fyrrverandi kærastan rýfur loksins þögnina um framhjáhaldsorðróminn – „Ég var niðurbrotin“
Fókus
Fyrir 1 viku

9 ára stúlka gekk út í myrkrið og sást aldrei aftur – Hvaðan kom dularfulla bókin?

9 ára stúlka gekk út í myrkrið og sást aldrei aftur – Hvaðan kom dularfulla bókin?