fbpx
Þriðjudagur 12.ágúst 2025
Fókus

Bensi og Sunneva hugsa sér til hreyfings

Fókus
Þriðjudaginn 3. september 2024 18:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Bjarnason, tölvunarfræðingur, sem kallaður er Bensi í vinahóp sínum, hefur sett íbúð sína við Naustavör í Kópavogi á sölu. 

Benedikt og kærasta hans, Sunneva Eir Einarsdóttir, fögnuðu fimm ára sambandsafmæli í lok ágúst, en Sunneva er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins. Benedikt er sonur Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og Þóru Margrétar Baldvinsdóttur hönnunarráðgjafa.

Fyrr í dag greindi Sunneva frá því að hún hefði skilað inn bílaleigubíl sem hún hefur keyrt í nokkra mánuði og hversu erfitt hún ætti með að segja skilið við bílnúmerið. Það er spurning hvað gerist þegar íbúð Bensa selst.

Sjá einnig: Sunneva átti erfitt með að kveðja goðsagnakennda bílnúmerið – „Þetta er búið að vera svo gaman en samt mjög vandræðalegt“

Íbúðin er 108,3 fm á fyrstu hæð í fjögurra hæða fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2020. Eignin skiptist í: forstofu, hol, sjónvarpsrými, hjónaherbergi með góðum fataskápum, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús með eyju, stofu og borðstofu. Íbúðin er með 3,3 fermetra austur svölum og 19,4 fm vestur verönd, sér geymsla 9,9 fm í kjallara og sérmerkt og rúmgott stæði í bílageymslu.

Benedikt keypti íbúðina árið 2020 fyrir 57,3 milljónir, ásett verð núna er 104,9 milljónir króna.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Stofnaði OnlyFans um leið og hún varð 18 ára – Faðir hennar bregst við

Stofnaði OnlyFans um leið og hún varð 18 ára – Faðir hennar bregst við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Háklassa vændiskona útskýrir af hverju hún myndi aldrei fara í vinnuferð til Dúbaí

Háklassa vændiskona útskýrir af hverju hún myndi aldrei fara í vinnuferð til Dúbaí
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fólk trúir honum ekki þegar hann segist vera með Ozempic typpi – Segir þetta sanna það

Fólk trúir honum ekki þegar hann segist vera með Ozempic typpi – Segir þetta sanna það
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segja fótboltastráka á Íslandi þjást af mikilmennskubrjálæði: „Þá sagði hann: „Þessi flaska er dýrari en mánaðarlaunin þín“

Segja fótboltastráka á Íslandi þjást af mikilmennskubrjálæði: „Þá sagði hann: „Þessi flaska er dýrari en mánaðarlaunin þín“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Dóttir Hulk Hogan útskýrir hvers vegna hún mætti ekki í jarðarförina hans

Dóttir Hulk Hogan útskýrir hvers vegna hún mætti ekki í jarðarförina hans
Fókus
Fyrir 5 dögum

Telur sig hafa fengið krabbamein vegna framhjáhaldsins

Telur sig hafa fengið krabbamein vegna framhjáhaldsins