fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Fókus

Tom Cruise hættur með kærustunni örfáum dögum eftir að hafa hitt börnin hennar

Fókus
Fimmtudaginn 22. febrúar 2024 11:14

Tom Cruise

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Tom Cruise er hættur með kærustu sinni, hinni rússnesku Elsinu Khayrova, aðeins örfáum dögum eftir að greint var frá því að hann hefði hitt börn hennar í fyrsta sinn.

Bæði eiga þau íbúð í sama húsinu í Hyde Park í London og kynntust í teboði sem Cruise hélt fyrir vini sína og vandamenn undir lok síðasta árs.

Mikill aldursmunur er á Cruise og Elsinu en hann er 61 árs og hún 36 ára. Þau höfðu farið á nokkur stefnumót í London síðustu vikur og leigði Cruise til dæmis Novikov-veitingastaðinn fyrir þau tvö eina kvöldstund. Cruise hefur nú ákveðið að kalla þetta gott.

Elsina á tvö börn úr fyrra sambandi og segir heimildarmaður The Sun að parið hætti saman í góðu. Bæði eigi íbúð í sama húsi og vilji gjarnan halda áfram að vera vinir.

Tom Cruise er nú við tökur á enn einni Mission: Impossible myndinni en hún er væntanleg í kvikmyndahús árið 2025. Hann hefur í auknum mæli varið tíma sínum í London undanfarin misseri og virðist kunna betur við sig þar en í Bandaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Missti andlitið þegar hún heyrði hvað lánið hafði margfaldast mikið

Missti andlitið þegar hún heyrði hvað lánið hafði margfaldast mikið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Skemmtiferðasigling frá helvíti – 4200 manns um borð og klósettin hættu að virka

Skemmtiferðasigling frá helvíti – 4200 manns um borð og klósettin hættu að virka
Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva var stoppuð af lögreglunni og kom í Dagbók lögreglunnar – „Æ Eva hættu að ljúga að opinberum starfsmanni“

Eva var stoppuð af lögreglunni og kom í Dagbók lögreglunnar – „Æ Eva hættu að ljúga að opinberum starfsmanni“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Var heilt heimsveldi vísvitandi strokið út úr sögunni?

Var heilt heimsveldi vísvitandi strokið út úr sögunni?