fbpx
Þriðjudagur 18.nóvember 2025
Fókus

Dorrit hefur upplifað mikið tilfinningalegt uppnám vegna gjörða nágranna hennar

Fókus
Þriðjudaginn 13. febrúar 2024 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daily Mail fjallar í dag um miklar raunir sem Dorrit Moussaieff, eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta Íslands, hefur gengið í gegnum vegna nágranna síns í London. Ítrekað hefur vatn lekið úr íbúð nágrannans yfir í íbúðina hennar Dorrit og valdið miklum skemmdum á dýrum eigum hennar.

Mikið var um dýra skó og dýr sérhönnuð föt í íbúð Dorritar. Íbúðin er í einu dýrasta hverfi borgarinnar en líklega hefur verðmæti hennar minnkað vegna þessara ítrekuðu leka. Auk tískuvarningsins eyðilagðist meðal annars kista sem innihélt margar ljósmyndir sem höfðu mikið tilfinningalegt gildi fyrir Dorrit.

Með umfjöllun Daily Mail fylgja ljósmyndir sem teknar voru í íbúðinni sem sýna meðal annars miklar skemmdir á gólfum og tískufötum.

Dorrit bar sig illa í samtali við Daily Mail. Hún segir að hinir ítrekuðu lekar hafa valdið því að mygla hafi myndast í íbúðinni og hún í kjölfarið veikst. Hún geti ekki lengur dvalið í íbúðinni því næsti leki geti komið á hverri stundu. Það hafi fengið mikið á hana að geta ekki verið í sinni eigin íbúð. Það sé síðan sérstaklega sárt að geta ekki boðið fjölskyldu sinni og Ólafs í heimsókn og enn verra sé að nágranninn hafi ekki sýnt neina tilburði til að bæta ástandið.

Það var einnig sárt fyrir Dorrit að lekarnir hafi eyðilagt verðmætar bækur sem geymdar voru í íbúðinni og föt sem iðulega voru geymd þar sem hún kallar:

„Sérstöku fötin mín í Bretlandi.“

Umræddur nágranni er Ástrali að nafni Greg Coffey en hann er sagður vera stjórnandi hjá vogunarsjóði.

Í umfjöllun Daily Mail er hann kallaður undrabarn (e. whizz-kid) það er þó ekki skilgreint nánar hvað hann hefur gert til að verðskulda þetta viðurnefni.

Dorrit hefur sagt að allt þetta mál hafi valdið henni andlegri áþján og að hún muni leita réttar síns gagnvart Coffey.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fara fram á gjaldþrot
Fókus
Fyrir 2 dögum

Úlfar gerir upp málverkafölsunarmálið – „Þetta var bara fár“

Úlfar gerir upp málverkafölsunarmálið – „Þetta var bara fár“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ákvað að opna sig um sína baráttu til að hjálpa öðrum: „Skömmin hefur alltaf verið til staðar“

Ákvað að opna sig um sína baráttu til að hjálpa öðrum: „Skömmin hefur alltaf verið til staðar“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Skaðlegt þegar fólk lætur eins og það sé með OCD því það vill hafa snyrtilegt í kringum sig

Skaðlegt þegar fólk lætur eins og það sé með OCD því það vill hafa snyrtilegt í kringum sig
Fókus
Fyrir 3 dögum

Huldukonan, Fröken Dúlla og Frumbyrjur meðal annars á lista Benedikt

Huldukonan, Fröken Dúlla og Frumbyrjur meðal annars á lista Benedikt
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnarök undir jökli – Áleitin spennusaga um siðferði og samkennd og skort á þeim gildum

Ragnarök undir jökli – Áleitin spennusaga um siðferði og samkennd og skort á þeim gildum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Áður óséð myndband setur allt í uppnám í máli Blake Lively gegn leikstjóranum Justin Baldoni

Áður óséð myndband setur allt í uppnám í máli Blake Lively gegn leikstjóranum Justin Baldoni