fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Karl sagður „þreyttur og pirraður“ á Andrési sem neitar að fara að fyrirmælum

Fókus
Miðvikudaginn 12. apríl 2023 11:00

Ætli Camilla sé með hærri sársaukaþröskuld en Karl?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karl Bretakonungur er sagður vera orðinn „þreyttur og pirraður“ á Andrési bróður sínum sem neitar að yfirgefa glæsihýsi konungsfjölskyldunnar í Windsor.

Greint var frá því á dögunum að Andrési hafi verið krafinn um að flytja í Frogmore Cottage sem hefur verið aðsetur Harrys Bretaprins og eiginkonu hans, Meghan, á undanförnum árum.

Sú staðreynd að um miklu minna hús er að ræða virðist ekki heilla Andrés sem hefur neitað að flytja úr Royal Lodge í Windsor.

Page Six greinir frá því að Karl sé orðinn verulega þreyttur á bróður sínum en eins og kunnugt er afsalaði hann sé öllum hertitlum og hlutverkum innan fjölskyldunnar í fyrra. Það gerðist eftir að hann var sakaður um kynferðislegt ofbeldi af Virginiu Guiffre.

Andrés, sem er 63 ára, hefur búið í Royal Lodge frá árinu 2003 og vill hann búa þar áfram.

„Hann vill ekki fara því eignin er ákveðið stöðutákn innan konungsfjölskyldunnar,“ segir heimildarmaður Page Six. Vilhjálmur, sonur Karls og Díönu heitinnar prinsessu, er sagður hafa augastað á Royal Lodge og er talið nær öruggt að hann flytji þangað um leið og Andrés hefur sig á brott.

Heimildarmaður Page Six segir að Karl sé þreyttur á að standa í stappi við bróður sinn, enda hann hafi hann öðrum hnöppum að hneppa þessa dagana. Hann býr sig sem kunnugt er undir krýningarathöfnina í Westminster Abbey þann 6. maí næstkomandi en þá verður hann formlega krýndur konungur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís