fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

„Ég fékk krabbamein og hummaði fram af mér einkennin“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 21. mars 2023 09:59

Steinar B. Aðalbjörnsson. Mynd úr myndabanka Torgs.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í fjögur ár fann Steinar B. Aðalbjörnsson, matvæla- og næringarfræðingur, fyrir einkennum í öðru eistanu en hann hummaði þau fram af sér. Í fjögur ár fann hann að það væri ekki allt eins og það ætti að vera þarna niðri, en hann harkaði það af sér og ætlaði að bíða þar til það myndi líða hjá. Sem það gerði aldrei.

Steinar var með krabbamein og viðurkennir að hann hafi verið ótrúlega heppinn að biðin hafi ekki komið í bakið á honum. „Það er eiginlega bara frábær og einstök saga í sjálfu sér að ég get skrifað þennan pistil til ykkar í dag,“ segir hann í pistli á Vísi.

„Einkennin fara eiginlega aldrei“

Steinar er starfsmaður Krabbameinsfélagsins. Árið 1996 var hann í námi í Bandaríkjunum og stundaði knattspyrnu.

„Ég fæ gríðarmikið högg í punginn þegar bolta er spyrnt af öllu afli í mig úr návígi. Þetta er óhapp. Þau gerast. Sama kvöld pissa ég blóði.

Daginn eftir er mikill sársauki. Ég fer til læknis sem lætur mig pissa í glas. Í þvaginu er allt í rugli. Hvít blóðkorn í allt of miklu magni og fleira til. Ég fæ lyf. Mér er sagt að koma aftur að viku liðinni. Sem ég geri. Ég pissa aftur í glas. Allt miklu betra en samt ekki 100%. Skilaboðin sem ég fæ eru að koma aftur eftir 2 vikur ef einkennin eru ekki algerlega farin. Einkennin fara eiginlega aldrei. Ég fer samt ekki aftur til læknisins,“ segir hann.

Allt skrýtið og viðkvæmt en „óþarfa áhyggjur“

Steinar segir að það hafi verið skrýtið að stunda kynlíf, skrýtið að setjast niður og skrýtið að koma við annað eistað.

„Það er viðkvæmt. Smátt og smátt myndast einhverskonar þykkildi á eistanu. Síðan líða fjögur ár. Í fjögur ár er ég daglega minntur á að það er ekki allt í lagi þarna niðri. Helmingur eistans er þakinn einhverju sem á ekki að vera þarna. Samt geri ég ekki neitt,“ segir hann og bætir við að hann hafi hugsað:

„Æ, þetta er bara vesen. Þetta eru bara óþarfar áhyggjur. Ég veit að þetta er bara eitthvað sem líður hjá. Það er bara þannig. Og jafnvel ef eitthvað er að þá er það bara ennþá meira vesen fyrir fjölskylduna. Þau munu hafa áhyggjur og þeim mun líða illa yfir þessu. Nei það er best bara að þegja. Þetta fer bara á endanum. Pottþétt! Ég veit það!“

Fékk krabbamein og hummaði fram af sér einkennin

Á Valentínusardaginn árið 2000 settist hann í sófann en spratt strax á fætur. Hann hélt að fjögurra ára dóttir hans hafði skilið eitthvað eftir oddhvasst í sófanum en það var ekki neitt þarna.

„Þetta er eistað enn á ný. Ég hringi í lækni og fæ tíma strax daginn eftir. Annar læknir daginn þar á eftir. Ómskoðun. Læknirinn segir að þetta sé krabbamein og hann hafi séð svona margoft. Leggur til að fjarlægja eistað. Ég leita skoðunar hjá öðrum sérfræðingi. Og svo hjá þeim þriðja, dr. Lawrence Einhorn, sem segir orðrétt eftir langt samtal: „Þú ert með tvö eistu, eitt dugar. Ekki taka áhættuna. Láttu taka eistað.“ Eistað er svo fjarlægt nokkrum dögum síðar,“ segir hann.

Steinar segir að hann hafi verið heppinn. „Ég fékk krabbamein og hummaði fram af mér einkennin. Ég var heppinn, stálheppinn, að það kæmi ekki í bakið á mér að bíða svona lengi. Í raun beið ég svo lengi að það er eiginlega bara frábær og einstök saga í sjálfu sér að ég get skrifað þennan pistil til ykkar í dag. Við karlmenn erum því miður oft of seinir til verka þegar kemur að okkar eigin heilsu. Þar liggur margt að baki og hjá mér var það kvíði og hræðsla við hið óþekkta. Það var auðveldara að stinga höfðinu í sandinn og vona að „vesenið“ færi af sjálfu sér. Sem það að sjálfsögðu gerði ekki!“

Að lokum hvetur hann karlmenn að vera ekki sami kjáni og hann var og leita sér læknisaðstoðar ef þeir eru með einkenni.

„Tölfræðin er með okkur ef við erum meðvitaðir um hvaða einkenni geta bent til krabbameins og látum kíkja á okkur ef líðanin er önnur en venjulega, hún er án skýrra orsaka og viðvarandi. Ekki humma fram af þér heilsuna! Þekktu einkennin!“

Pistilinn má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“