fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Velta fyrir sér nýju nafni á Bjúgnakræki

Fókus
Þriðjudaginn 19. desember 2023 13:40

Skjáskot Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýrri færslu á Facebook-síðu sinni spyr Listasafn Íslands hvort Bjúgnakrækir þurfi ekki að uppfæra sig í takt við tímann og neyta meira grænmetis. Safnið spyr einnig hvert nýtt nafn Bjúgnakrækis yrði ef hann gerðist grænmetisæta.

Í upphafi færslunnar segir að íslenskt samfélag hafi tekið breytingum og það þurfi jólasveinarnir að sætta sig við:

„Bjúgnakrækir hefur líkt og margir aðrir jólasveinar þurft að sætta sig við breyttar þjóðfélagsaðstæður. Bjúgnagerð fer minnkandi á heimilum, þar sem margir reyna eftir fremstu getu að minnka neyslu á unnum kjötvörum og einnig fer vaxandi hópur þeirra sem fylla ísskápinn einungis af grænmeti.“

Hvetur safnið Bjúgnakræki til að snúa sér frá bjúgunum og í átt að meira grænmeti:

„Því er spurning hvort Bjúgnakrækir þurfi ekki að uppfæra sig í takt við tímann og tileinka sér nýtt matarræði. Það gæti reynst honum erfitt eftir öll þessi ár en það er aldrei of seint að huga að heilsunni.“

„Kæri Bjúgnakrækir, meira salat og minni saltpétur um þessi jól.“

Að lokum spyr Listasafn Íslands þessarar stóru spurningar:

„Ef Bjúgnakrækir gerðist grænmetisæta, hvert yrði hans nýja nafn?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 3 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short