fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Fókus

Stuð á opnunarhátíð NN Studio og Cobru

Fókus
Föstudaginn 1. september 2023 17:59

Förðunarmeistararnir Kristín Friðriksdóttir, Svanhvít Valgeirs og Kristín Stefánsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var mikið stuð og stemning á fyrsta degi opnunarhátíðar NN Studio og Cobru.

Báðar verslanirnar eru við Garðatorg 4 í Garðabæ og hafa gengist undir talsverðar framkvæmdir undanfarna viku. Viðskiptavinum var boðið í veglegt partý í dag, en veislan heldur áfram á morgun. Það eru einnig alls konar tilboð í gangi sem verða alla helgina.

Breytingarnar bjóða upp á skemmtilega og spennandi tíma fyrir viðskiptavini. NN Studio hefur aukið vöruúrval um 30 prósent og tekið inn ný snyrtivörumerki; Resibo og Nobe, og vinsælu skóna frá Vagabond og Ecco.

Einnig verða haldin förðunarnámskeið og dekurkvöld í nýju aðstöðunni.

Stærri verslun með meira vöruúrval.

Lífsstílsverslun

Kristín Stefánsdóttir stofnaði NN Studio árið 2015 og tók nýverið við Cobru. Sokkabúðin hefur verið starfandi í 24 ár og er velkomin viðbót.

„Við erum mjög spenntar að kynna breytingarnar til viðskiptavina okkar. Við höfum verið með mjög tryggan hóp viðskiptavina í gegnum árin og þykir það því mikið gleðiefni að geta boðið þeim upp á aukið vöruúrval og þjónustu, og vonandi stækka hópinn í leiðinni. NN Studio er ekki lengur bara snyrtivöru- og fataverslun heldur lífsstílsverslun og við vonum að sem flestir komist um helgina að fagna því með okkur,“ segir Margrét Guðjónsdóttir, markaðsstjóri NoName ehf.

„Það er líka gaman að segja frá því að við ákváðum þessar framkvæmdir fyrir mánuði síðan, lokuðum í tvo daga og gerðum stóran hluta sjálfar, meðal annars að veggfóðra.“

Starfsmenn NN Studio og Cobru: Sigrún Pedersen, Björg Birgisdóttir, Gerður Guðmundsdóttir.

Það var mikil stemning og gestir fengu sér léttar veitingar og skáluðu í drykkjum frá Borg Brugghúsi.

Margrét Guðjónsdóttir, markaðsstjóri, Kristín Stefánsdóttir eigandi og Kolbrún Edda Júlinusdóttir, sölustjóri.
Aðsend mynd.
Förðunarmeistararnir Kristín Friðriksdóttir, Svanhvít Valgeirs og Kristín Stefánsdóttir.
Nýja aðstaðan býður upp á ýmsa möguleika.
Aðsend mynd.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Gefur Bríet falleinkunn fyrir tónleika – „Stundum var líkt og söngkonan syngi í gegnum nefið“

Gefur Bríet falleinkunn fyrir tónleika – „Stundum var líkt og söngkonan syngi í gegnum nefið“
Fókus
Í gær

Megan Fox sá eitthvað óviðeigandi í síma MGK og hætti með honum – Er ítalska kyntröllið nýi kærastinn?

Megan Fox sá eitthvað óviðeigandi í síma MGK og hætti með honum – Er ítalska kyntröllið nýi kærastinn?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sagan af Kóngsa geimfara er ný barnabók eftir Laufeyju Arnardóttur

Sagan af Kóngsa geimfara er ný barnabók eftir Laufeyju Arnardóttur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnar fékk áfall þegar vaktfélagi hans svipti sig lífi – „Hann bjargaði mörgum mannslífum, af hverju gat ég ekki bjargað hans?“

Ragnar fékk áfall þegar vaktfélagi hans svipti sig lífi – „Hann bjargaði mörgum mannslífum, af hverju gat ég ekki bjargað hans?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensk móðir skráði sig á Tinder og fékk áfall vegna þess sem hún sá: „Mér finnst þetta svo hræðilega rangt“

Íslensk móðir skráði sig á Tinder og fékk áfall vegna þess sem hún sá: „Mér finnst þetta svo hræðilega rangt“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Guðrún gaf Helga Jean súludans í afmælisgjöf – Allir stoppuðu og horfðu

Guðrún gaf Helga Jean súludans í afmælisgjöf – Allir stoppuðu og horfðu