fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fókus

Skandallinn vindur upp á sig – Ásakanir um ofbeldi og framhjáhald með starfsmanni

Fókus
Föstudaginn 18. ágúst 2023 10:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Sam Asghari sótti um skilnað frá poppstjörnunni Britney Spears á miðvikudaginn síðastliðinn og sama dag birtu fjölmiðlar vestanhafs fréttir um hjónaslitin.

Í kjölfarið birtust fréttir um meinta fjárkúgun Sam og meintar ásakanir hans um framhjáhald.

Sjá einnig: Skilnaðarskandall ársins í uppsiglingu – Framhjáhald og fjárkúgun

Málið hefur undið upp á sig og greinir TMZ frá því að Britney á að hafa haldið framhjá með starfsmanni sem vann heima hjá henni.

Heimildarmaður TMZ sagði að leikarinn hafi komist að framhjáhaldinu því hann hafi fundið grunsamlegt myndefni af Britney og starfsmanninum saman.

Samkvæmt heimildarmanninum á Sam einnig að hafa haldið því fram að Britney hafi beðið annan starfsmann um að taka myndband af henni naktri.

Hvorki Britney né Sam hafa tjáð sig um málið.

Á að hafa ráðist á hann

Slúðurmiðillinn TMZ greindi einnig frá því Britney átti að hafa ráðist á Sam fyrr á þessu ári á meðan hann svaf og gefið honum glóðarauga.

Sam lagði fram skilnaðarpappíra á miðvikudaginn og sagði ástæðuna fyrir skilnaðinum vera „óleysanlegan ágreining.“

Hann rauf þögnina um skilnaðinn á Instagram í gær. Hann minntist ekki á neinar ásakanir í yfirlýsingu sinni, heldur sagði að þau beri virðingu fyrir hvort öðru og að hann óskaði Britney alls hins besta í framtíðinni.

Sjá einnig: Sam Asghari rýfur þögnina

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – Ældi á miðjum tónleikum og nú mega jólin koma

Vikan á Instagram – Ældi á miðjum tónleikum og nú mega jólin koma
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ólöf óttast um dóttur sína: „Ég byrjaði að kalla á hjálp strax þegar hún var sjö ára en það vildi enginn hlusta á mig eða trúa mér“

Ólöf óttast um dóttur sína: „Ég byrjaði að kalla á hjálp strax þegar hún var sjö ára en það vildi enginn hlusta á mig eða trúa mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ánægð með að bróðir hennar sé líffræðilegur faðir sonarins

Ánægð með að bróðir hennar sé líffræðilegur faðir sonarins
Fókus
Fyrir 6 dögum

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs
Fókus
Fyrir 6 dögum

Kommentakerfi Jerusalem Post logar eftir Eurovision-ákvörðun Íslendinga

Kommentakerfi Jerusalem Post logar eftir Eurovision-ákvörðun Íslendinga
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dagbjört deilir áhrifaríku ráði fyrir jólin en eflaust flestir ekki tilbúnir að taka því

Dagbjört deilir áhrifaríku ráði fyrir jólin en eflaust flestir ekki tilbúnir að taka því