fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Fókus

Birtir mynd af píku dagsins – „Við verðum kannski allavega fram að jólum að birta þessar myndir“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 11. nóvember 2022 08:44

Sigga Dögg. Mynd/Óttar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigga Dögg kynfræðingur hefur ekki undan að taka á móti píkumyndum.

Í gær óskaði hún eftir píkumyndum sem hún mun síðan birta á heimasíðu sinni, siggadogg.is. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og í gærkvöldi greindi Sigga Dögg frá því að hún hafi fengið fjölda mynda.

„Staðan er þannig að ég hef ekki undan við að svara píkumyndum og vera í samtali við þau sem senda inn myndir, því ég fæ alltaf smá upplýsingar til að setja inn með píkumyndunum. Ég hélt þetta yrðu svona tíu myndir. Nei… Þetta eru svolítið margar myndir. Við verðum kannski allavega fram að jólum að birta þessar myndir. Ég mun þurfa að gera skemmtilegt myndband með tónlist undir,“ sagði Sigga Dögg á Instagram í gær.

Hún hefur þegar birt tvær píkumyndir en hún mun koma til með að birta „Píku dagsins“ á hverjum degi þar til hún verður uppiskroppa með myndir.

Myndirnar má nálgast á siggadogg.is en hún tekur fram í hverri færslu að „þetta er ekki eitthvað sem þú ættir að skoða ef þú ert í almannarými til að særa ekki blygðunarkennd viðstaddra.“

Með hverri píkumynd fylgir smá saga frá eiganda hennar.

Útsala á námskeiðum

Sigga Dögg er með útsölu í tilefni „Singles Day“ í dag og eru vinsælu námskeiðin hennar – Kjaftað um kynlíf – á afslætti á vefsíðu hennar.

Námskeiðin hafa vakið mikla lukku hjá uppalendum um land allt. Boðið er upp á námskeið fyrir foreldra með börn frá fæðingu til átján ára aldurs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Helga dásamaði ísraelska lagið en fékk bágt fyrir – „Megi friður takast í heiminum AMEN“

Helga dásamaði ísraelska lagið en fékk bágt fyrir – „Megi friður takast í heiminum AMEN“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Eiginkonan vill að ég stundi kynlíf með öðrum konum – Hjálp!

Eiginkonan vill að ég stundi kynlíf með öðrum konum – Hjálp!
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta er það eina sem pirrar hana við eiginmanninn – „Þú ert að eyðileggja daginn minn“

Þetta er það eina sem pirrar hana við eiginmanninn – „Þú ert að eyðileggja daginn minn“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hætti með kærastanum því hann var alltaf svo upptekinn – Fékk áfall þegar hún komst að ástæðunni

Hætti með kærastanum því hann var alltaf svo upptekinn – Fékk áfall þegar hún komst að ástæðunni