fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fókus

Eign dagsins: Hjálmar Örn og fjölskylda selja aukaíbúðina í Árbænum

Rafn Ágúst Ragnarsson
Þriðjudaginn 12. júlí 2022 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Hjálmar Örn Jóhannsson og Ljósbrá Logadóttir selja fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi við Laxakvísl 21 í Árbænum. Íbúðin er með útgengi út í hellulagðan garð með grasflöt bæði frá stofu og svefnherbergi og rúmgóða geymslu í sameign. Íbúðin er einnig í rólegu hverfi í göngufæri við skóla og leikskóla. Íbúðin er 107,6 fermetrar að geymslunni undanskilinni.

Eldhúsið er flísalagt með snyrtilegri innréttingu með góðu skápaplássi og flísum á milli skápa. Stofan er með stóra glugga sem gefa fallega birtu í rýmið.

Hjónin búa sjálf ekki í íbúðinni heldur hafa þau verið að leigja hana út síðustu ár. „Þessi staðsetning er náttúrlega fáránlega góð. Þú ert með barnaróló þarna fyrir utan. Það er mikið af barnafólki í blokkinni og svo er Ártúnsskóli rómaðasti skóli landsins, hann er besti skóli landsins. Við vorum næstum því sjálf byrjuð að hugsa um að fara að búa þarna,Hjálmar Örn og fjölskylda selja glæsilega íbúð í Árbænum – „Þessi staðsetning er náttúrlega fáránlega góð“ hafði Hjálmar að segja um íbúðina.

Hjálmar sagði að það sem hindraði þau í að flytja inn sjálf var að stærðin hefði ekki hentað þeim ekki nógu vel en að þau elski þessa íbúð samt sem áður. Hjálmar sagði einnig að hann og fjölskyldan væru að huga að því að stækka við sig sjálf.

Það er hægt að lesa nánar um íbúðina, endurbætur og sjá fleiri myndir hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 6 dögum

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga