Ef þú átt snjallúr þá hefurðu hugsanlega prófað að kveikja á æfingastillingunni fyrir ástaratlot til að athuga hvað þú brennir mörgum kaloríum.
Kynlíf getur verið miskrefjandi, það fer allt eftir stellingunni. En ef þú vilt endilega vita það þá geturðu nú farið á vefsíðu á vegum fyrirtækisins From Mars. Þar er einföld reiknivél sem segir þér hvað hver stelling brennir mörgum kaloríum.
Við prófuðum reiknivélina og settum tíu mínútur fyrir hverja stellingu.
Smjörstrokkurinn (e. butter churner) er erfiðasta stellingin en í henni brennir þú 70 kaloríum á tíu mínútum, miðað við aðeins 13 kaloríum í kúrekastelpunni (e. cowgirl).
Stuttu á eftir smjörstrokknum kemur standandi staða, „doggy style“ og hjólbörurnar. Sjáðu listann hér að neðan.