fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Fókus

Benedikt Bóas tætir í sig kosningasjónvarp RÚV: Fídusafyllerí og galið teiti á Kjarvalsstofu

Fókus
Þriðjudaginn 28. september 2021 13:15

Benedikt Bóas Hinriksson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sparksérfræðingurinn og samfélagsrýnirinn Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður á Fréttablaðinu, þótti lítið til Kosningasjónvarps RÚV koma. Benedikt skrifaði ádrepu í tveimur hlutum um frammistöðu kollega sinn á RÚV í dálkinn Frá degi til dags í Fréttablað dagsins.

Í fyrri hlutanum, sem nefnist Fídusafyllerí, segir Bendikt að kosningasjónvarpið hafi verið pínlegt á köflum þó vissulega toppi það ekki talningaruglið sem enn sér ekki fyrir endann á.

„Ríkisstöðin stillti upp sínum helstu kanónum. Bogi Ágústsson, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, Rakel Þorbergsdóttir og Heiðar Örn Sigurfinnsson stýrðu rándýru prógramminu sem virtist þó ekki nógu stórt fyrir stjörnurnar og núningur þeirra í milli skilaði sér lóðbeint heim í stofu. Þrátt fyrir að kunna öll sporin fundu þau aldrei taktinn þótt þau væru ekki jafn illa áttuð og útsendingarstjórnin sem var á einhvers konar fídusafylleríi og klippti alltof seint á kosningavökur þegar tölur voru lesnar upp,“ skrifar Benedikt hvass.

Kjarvalsstofupartýið galin ákvörðun

Seinni hlutinn heitir einfaldlega „Baldvin skemmtir sér“ og fjallar um þá gölnu ákvörðun, að mati Benedikts, að slá upp teiti í Kjarvalsstofu þar sem að gestir voru fengnir í spjall.

„Þaðan fengu sjónvarpsáhorfendur skemmtistað beint í æð með svo skelfilegu hljóði að
bakgrunnskliðurinn frá blindfullu fólki yfirgnæfði viðmælendur. RÚV greip enda á það ráð að taka bara upp frekar ódýra míkrófóna þegar leið á útsendinguna. Baldvin Bergsson stýrði veislunni og fílaði sig ágætlega í því hlutverki enda tókst honum greinilega miklum mun betur að skemmta sjálfum sér en talnaþyrstum áhorfendum,“ skrifar Benedikt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
Fókus
Fyrir 2 dögum

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson
Fókus
Fyrir 2 dögum

Heima Heimaey, partýtryllir sumarsins!

Heima Heimaey, partýtryllir sumarsins!
Fókus
Fyrir 2 dögum

Mætti í fyrsta kynlífspartýið árið 2019 – Þetta eru helstu reglurnar

Mætti í fyrsta kynlífspartýið árið 2019 – Þetta eru helstu reglurnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stebbi Hilmars búinn að fá nóg af orðinu „gaslýsing“ og leggur til fjölmörg önnur

Stebbi Hilmars búinn að fá nóg af orðinu „gaslýsing“ og leggur til fjölmörg önnur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ertu þyngri eftir helgina? – Þetta hefur Ragnhildur um það að segja

Ertu þyngri eftir helgina? – Þetta hefur Ragnhildur um það að segja
Fókus
Fyrir 4 dögum

Framferði stjörnunnar vekur athygli netverja – „Matthew, af hverju tekurðu svona mikið pláss?“

Framferði stjörnunnar vekur athygli netverja – „Matthew, af hverju tekurðu svona mikið pláss?“