fbpx
Þriðjudagur 23.desember 2025
Fókus

Hágrét eftir niðurlægingu í flugvél: Mátti ekki klæða sig svona – „Ég hef aldrei verið eins reið og leið“

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 3. ágúst 2021 17:00

Samsett mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona hágrét eftir að hafa verið skömmuð af starfsmanni Alaskan Airline fyrir að vera illa klædd. Hún greindi sjálf frá þessu á samfélagsmiðlinum TikTok, en breskir miðlar hafa fjallað um málið.

Konan heitir Sierra Stedman, en myndband hennar hefur farið eins og eldur um sinu um internetið, en það er með hátt í sex milljón áhorf á TikTok. Það á að hafa verið tekið upp strax í kjölfar rifrilda hennar við flugþjóninn, en á því er hún í miklu uppnámi. Við myndbandið skrifar hún:

„Ég hef aldrei verið eins niðurlægð, skömmustuleg, vandræðaleg, reið og leið. Alaska Airlines má fokka sér!!!“

@sierrasteadmanive never felt more degraded, ashamed, embarrassed, angry or sad. F ALASKA AIRLINES!!!!!!! ##fyp♬ yeastie girlz x tv girl – 🧝🏾‍♀️🌱

Í myndbandinu sjálfu greinir hún frá því að hafa verið skömmuð fyrir framan alla farþega vélarinnar fyrir klæðaburð sinn. Í öðru myndbandi sýndi hún þennan klæðuburð sem fór fyrir brjóstið á flugþjóninum. Hún var klædd í hvítar stuttbuxur, svartan topp og gráa hettupeysu.

@sierrasteadmanReply to @emma.el15 ##greenscreen♬ romanticize that jealousy jealousy life – cynthia 🌟🦋

Í athugasemdakerfinu fyrir neðan myndbandið fjallaði Sierra frekar um málið. Hún segist hafa samþykkt að renna upp hettupeysunni, en svo hafi flugþjónninn haldið áfram að ónáða hana, öskrað á hana og gripið í höndina á henni er hún reyndi að komast undan.

Nú hefur Sierra birt afsökunarbeiðni sem hún fékk frá Alaska Airlines. Þar viðurkennir flugfélagið að þjónustan sem hún fékk hafi ekki verið viðeigandi, og að það ætli sér að rannsaka málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Reynir að tortíma mannkyninu

Reynir að tortíma mannkyninu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Unnur Óla frumsýndi nýjan kærasta á Vitringunum 3

Unnur Óla frumsýndi nýjan kærasta á Vitringunum 3
Fókus
Fyrir 3 dögum

Börn áhrifavalds fengu miða á Iceguys í skóinn og allt varð vitlaust

Börn áhrifavalds fengu miða á Iceguys í skóinn og allt varð vitlaust
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Svo hef ég alltaf einhverjar teiknimyndasögur upp á að hlaupa“

„Svo hef ég alltaf einhverjar teiknimyndasögur upp á að hlaupa“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill búinn í áfengismeðferð – Svona lýsir hann upplifuninni

Simmi Vill búinn í áfengismeðferð – Svona lýsir hann upplifuninni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Konan í Coldplay-hneykslinu rýfur loks þögnina – Lífið breyttist í algjöra martröð

Konan í Coldplay-hneykslinu rýfur loks þögnina – Lífið breyttist í algjöra martröð