fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Fókus

Svona hefndi hún sín á kærastanum – „Ég rétti honum vöfflurnar og skrúfaði svo fyrir vatnið“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 28. júní 2021 10:37

Skjáskot/TikTok

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er „trend“ á TikTok þar sem netverjar deila því smásmugulegasta (e. petty) sem þeir hafa gert eftir sambandsslit.

TikTok notandinn @t_lexy_t hafði heldur betur smásmugulega sögu að segja. Hún komst að því að kærasti hennar væri að halda framhjá og ákvað að ná fram ansi klikkaðri hefnd.

„Ég ákvað að búa til morgunmat, ég bjó til vöfflur og hellti heilli flösku af Miralax í deigið. Hann var að spila tölvuleik þannig ég rétti honum vöfflurnar: „Gjörðu svo vel, góðan daginn.“ Ég rétti honum vöfflurnar og skrúfaði svo fyrir vatnið í íbúðinni hans, allavega í baðherberginu, og ég tók allan klósettpappírinn,“ segir hún og hlær.

@t_lexy_t##stitch with @bribri_comedy just all around ##petty ##laxatives ##foryou♬ Monkeys Spinning Monkeys – Kevin MacLeod

Yfir 1,2 milljón manns hafa líkað við myndbandið. Nokkrar konur skrifa við myndbandið og segja hvað þær gerðu þegar þær komust að framhjáhaldi fyrrverandi maka.

„Eftir að hann hélt framhjá þá límdi ég lokin á öllum vörunum hans, rakspíranum, sjampó flöskunni og svo framvegis,“ segir ein.

„Ég tók gardínurnar, Wifi netbeininn og öll símahleðslutækin og í hvert skipti sem ég fór að sækja dót sem ég gleymdi hjá honum þá tók ég hleðslutækið sem hann var nýbúinn að kaupa,“ segir önnur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
Fókus
Fyrir 2 dögum

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson
Fókus
Fyrir 2 dögum

Heima Heimaey, partýtryllir sumarsins!

Heima Heimaey, partýtryllir sumarsins!
Fókus
Fyrir 2 dögum

Mætti í fyrsta kynlífspartýið árið 2019 – Þetta eru helstu reglurnar

Mætti í fyrsta kynlífspartýið árið 2019 – Þetta eru helstu reglurnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stebbi Hilmars búinn að fá nóg af orðinu „gaslýsing“ og leggur til fjölmörg önnur

Stebbi Hilmars búinn að fá nóg af orðinu „gaslýsing“ og leggur til fjölmörg önnur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ertu þyngri eftir helgina? – Þetta hefur Ragnhildur um það að segja

Ertu þyngri eftir helgina? – Þetta hefur Ragnhildur um það að segja
Fókus
Fyrir 4 dögum

Framferði stjörnunnar vekur athygli netverja – „Matthew, af hverju tekurðu svona mikið pláss?“

Framferði stjörnunnar vekur athygli netverja – „Matthew, af hverju tekurðu svona mikið pláss?“