fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fókus

Opnar prufur fyrir hlutverk í nýrri íslenskri teiknimynd

Fókus
Miðvikudaginn 3. nóvember 2021 10:04

Margt býr í Tulipop

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Opnar prufur fyrir hlutverk í nýrri íslenskri teiknimynda þáttaröð fara fram á laugardaginn. Öllum krökkum á aldrinum 8-12 ára stendur til boða að mæta þar sem leitað er að upprennandi ungum leikurum til að talsetja hlutverk Búa, Glóar, Fredda og Maddýjar í nýrri Tulipop teiknimyndaþáttaröð sem verður sýnd í Sjónvarpi Símans Premium í byrjun næsta árs.

„Margt býr í Tulipop“ er ein metnaðarfyllsta íslenska teiknimynda þáttaröð fyrir börn sem framleidd hefur verið um árabil. Þáttaröðin byggir á hinum séríslenska ævintýraheimi sem nefnist Tulipop og fjölbreyttu persónunum sem þar búa, en Tulipop heimurinn hefur notið vinsælda meðal barna og fullorðinna á Íslandi.

Helga Árna og Signý Kolbeins frá Tulipop.

Í þáttunum fylgjumst við með fimm vinum: loðna og vinalega Fredda, sveppa systkinunum Búa og Gló, litríku Maddýju og Herra Barra sem er elstur og vitrastur allra á Tulipop. Þau eru öll ólík bæði í útliti og skapgerð. Á Tulipop eru kvenpersónur sterkar og staðalímyndir ekki til. Enginn er fullkominn, allir hafa sína kosti og galla og það sem mestu máli skiptir er kærleikurinn og vináttan. Hver þáttur er fullur af fjöri, óvæntum og fyndnum uppákomum og við fylgjumst með vinunum læra um lífið og tilveruna, hvort annað og síðast en ekki síst eyjuna sjálfa og ótrúlega krafta náttúrunnar.

María Hrund Marinósdóttir, framkvæmdastjóri Móðurskipsins segir „Við hvetjum öll börn á aldrinum 8-12 ára til að koma og spreyta sig. Það er ekki nauðsynlegt að hafa reynslu af leiklist heldur er áhugi og leikgleði í fyrirrúmi.“

Prufurnar fara fram í Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýrinni n.k. laugardag frá kl. 11 til 17. Móðurskipið, umboðsskrifstofa leikara, hefur umsjón með prufunum fyrir hönd Tulipop Studios, sem er framleiðandi teiknimynda þáttaraðarinnar. Frekari upplýsingar og skráning fer fram á www.modurskipid.is/tulipop

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Kom að pabba sínum látnum: „Átti lengi erfitt með að ná myndinni úr hausnum á mér”

Kom að pabba sínum látnum: „Átti lengi erfitt með að ná myndinni úr hausnum á mér”
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Forsprakki Manowar segir Íslendingum að brýna stálið – „Búist við tónleikum þar sem jörðin undir fótum ykkar skelfur“

Forsprakki Manowar segir Íslendingum að brýna stálið – „Búist við tónleikum þar sem jörðin undir fótum ykkar skelfur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Svona lítur stjarnan úr einu umtalaðasta tónlistarmyndbandi sögunnar út í dag

Svona lítur stjarnan úr einu umtalaðasta tónlistarmyndbandi sögunnar út í dag