Vefverslunin Pomp og prakt hefur tryggt sér umboðið fyrir iDesign – The Home Edit vörulínunni sem hefur farið sem eldur í sinu víða um lönd eftir að Netflix serían „Get Organized with The Home Edit“ sló rækilega í gegn. Vörulínan er því svo sannarlega spennandi viðbót við úrvalið hjá Pompi og prakt sem opnaði fyrir rúmum mánuði með hinum vinsælu og vönduðu skipulagsvörum frá iDesign. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Von er á annarri seríu The Home Edit í janúar og Popmpi og prakt er sönn ánægja að geta loksins boðið upp á The Home Edit línuna á Íslandi og öll þau fjölbreyttu acryl box sem hún inniheldur og auðvelda allt skipulag í hverjum krók og kima á heimilum og vinnustöðum. Þá er einnig væntanlega viðarlína fyrir þá sem vilja einungis nota endurvinnanleg efni.
iDesign – The Home Edit eru einungis til sölu í einni verslunarkeðju í Bandaríkjunum, The Container Store, einni í Bretlandi, John Lewis. Þannig að hjá Pompi og prakt er mikil ánægja með að hafa komist yfir þetta eftirstótta umboð og geta boðið vörurnar til sölu á Íslandi.
Eigendur Pomp og prakt, mæðgurnar Heiða B. Heiðars og Brynja Dögg Heiðudóttir, töldu raunhæft að reikna með því að fá umboðið fyrir þessa vinsælu vörulínu eftir eitt eða tvö ár. Biðin reyndist miklu styttri og það kom þeim vægast sagt ánægjulega á óvart þegar þær fengu grænt ljós fyrir nokkrum vikum og þær hafa verið í mestu vandræðum að halda þessu leyndu.