fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fókus

Frétti ekki af sjálfsvígi sonar síns fyrr en viku seinna

Bjarki Sigurðsson
Laugardaginn 24. apríl 2021 13:37

Mynd/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sesselja Anna Ólafsdóttir missti son sinn árið 2019. Hann tók sitt eigið líf á geðdeild í Leipzig í Þýskalandi, aðeins 31 árs gamall. Vegna mannlegra mistaka frétti fjölskyldan ekki af andlátinu fyrr en viku seinna. Mannlíf ræddi við Sesselju.

Helgi Már, sonur Sesselju, útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hann hafði áhuga á að fara í framhaldsnám erlendis og fór að safna sér pening. Þá fékk hann botlangabólgukast og þurfti að fara í aðgerð. Þetta kast átti eftir að valda honum magaverkjum alla hans ævi. Hann fluttist til Belgíu og starfaði á hestabúgarði í nokkra mánuði. Þar var farið illa með hann og vill Sesselja meina að um vinnuþrælkun hafi verið að ræða.

Helgi flutti til Leipzig árið 2012 þar sem hann stefndi á listnám. Hann komst þó ekki inn í skólann sem hann ætlaði sér í fyrr en árið 2016. Sesselja segir son sinn hafa verið ótrúlega ánægðan og að hann hafi haldið myndlistarsýningar og spilað á gítar með hljómsveitum um allan bæ.

Sesselja sendi Helga pening á meðan hann var úti þar sem hann fékk ekki námslán. Hann þjáðist enn af verkjunum og átti erfitt með að sofa vegna þeirra. Í október 2018 lagðist hann að lokum inn á geðdeild í Leipzig vegna andlegrar líðan sem rekja má til svefnleysis.

Sesselja og eldri dóttir hennar ákváðu að heimsækja Helga á sjúkrahúsið í Leipzig í mars 2019. Helgi hafði ekki svarað símtölum í nokkra daga áður en þær komu út. Síðasta símtalið var 28. febrúar.

Þegar Sesselja var komin á sjúkrahúsið þann 7. mars fóru þær að spyrjast til um Helga en fengu fá svör þar sem enginn talaði almennilega ensku. Þegar þær höfðu beðið í tvo tíma var þeim tilkynnt að Helgi væri látinn. Hann hafði tekið sitt eigið líf viku áður.

Sjúkrahúsið tilkynnti andlátið til íslenskra yfirvalda fljótlega en lögreglumaður á Íslandi sem tók við tölvupóstinum gleymdi að láta þau vita. Lögreglan hafði ekki samband við fjölskylduna fyrr en Sesselja og systir Helga voru mættar á sjúkrahúsið.

Viðtalið við Sesselju má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragna Sif innanhússhönnuður selur glæsilegt parhús á Kársnesi

Ragna Sif innanhússhönnuður selur glæsilegt parhús á Kársnesi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Brad Pitt og Tom Cruise sameinast aftur eftir 24 ár

Brad Pitt og Tom Cruise sameinast aftur eftir 24 ár
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu