fbpx
Föstudagur 26.desember 2025
Fókus

Goslokahátíð með breyttu sniði: Engin skemmtun á laugardagskvöldið

Sóley Guðmundsdóttir
Þriðjudaginn 30. júní 2020 17:03

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Goslokahátíðin í Vestmannaeyjum fer fram næstu helgi. Dagskrá hátíðarinnar kom út í dag eftir erfiða skipulagningu sökum Covid-19. Skipulagning hátíðarinnar hófst í byrjun árs. Hápunkturinn undanfarin ár hefur verið útiskemmtun á laugardagskvöldinu. Eftir að Covid-19 kom upp var ákveðið að sleppa þeirri skemmtun og leggja áherslu á aðra viðburði. Ákveðið var að halda fjölskyldutónleika á laugardagskvöldinu sem hefur nú verið aflýst.

„Forsendur breyttust um helgina þegar innanlandssmitin komu upp,“ segir Sigurhanna Friðþórsdóttir einn af skipuleggjendum hátíðarinnar. „Yfirvöld hertu kröfurnar og við sáum okkur ekki fært að halda tónleika þar sem búist var við fjölda fólks. Við vorum búin að gera ráð fyrir að skipta svæðinu upp. Svo núna eftir helgi var komin upp sú staða að við hefðum þurft að hafa gæslu í hverju einasta hólfi og fólk hefði ekki mátt fara út úr sínu hólfi. Þetta hefði getað skapað meiri leiðindi heldur en gleði,“ segir Sigurhanna.

Aðrir viðburðir haldast óbreyttir. „Við höldum okkur við barnadagskrána og smærri listviðburði.“ Fleiri tónleikar eru á dagskrá komandi helgi. Þeir munu þeir allir fara fram enda uppfylla þeir öll skilyrði tengd sóttvörnum og fjöldatakmörkunum að sögn Sigurhönnu.

„Við tókum þessa ákvörðun með hag bæjarbúa í huga. Viðbrögðin hafa ekki verið neitt annað en góð, við fáum mikinn skilning frá öllum,“ segir Sigurhanna.

„Goslokanefnd óskar gestum sínum og landsmönnum öllum góðrar skemmtunar um helgina og minnir á mikilvægi sóttvarna og ábyrgrar hegðunar í hvívetna,“ segir Sigurhanna.

Fréttin hefur verið uppfærð

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Öðruvísi“ jólamatur – Djásn hægeldunar, tákn eftir grænkeraföstu og fiskurinn í baðinu

„Öðruvísi“ jólamatur – Djásn hægeldunar, tákn eftir grænkeraföstu og fiskurinn í baðinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Missti tönn í jólaleik sem „fór úrskeiðis“

Missti tönn í jólaleik sem „fór úrskeiðis“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Málið loksins útkljáð – Die Hard er ekki jólamynd

Málið loksins útkljáð – Die Hard er ekki jólamynd
Fókus
Fyrir 4 dögum

Florence Pugh sér eftir því að hafa leikið í kvikmynd Íslendings – „Ég var ung og vantaði pening“

Florence Pugh sér eftir því að hafa leikið í kvikmynd Íslendings – „Ég var ung og vantaði pening“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Tvíburarnir fagna fjórtán árum með kærastanum sem þær deila – Bregðast loks við spurningunni sem allir vilja vita

Tvíburarnir fagna fjórtán árum með kærastanum sem þær deila – Bregðast loks við spurningunni sem allir vilja vita
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rithöfundurinn Bjarni Bjarnason strauk að heiman í æsku – „Löggan talaði við okkur og gaf okkur snúð“

Rithöfundurinn Bjarni Bjarnason strauk að heiman í æsku – „Löggan talaði við okkur og gaf okkur snúð“