Frá þessu er greint í grein sem birtist á ScienseDirect en rannsóknin var gerð í Kína. Þar kemur fram að karlmenn með dýpri raddir og karlmennskutilburði séu líklegri til að halda framhjá mökum sínum. „Menn sem hafa meira testósterón, og þar af leiðandi dýpri raddir, geta verið lélegri í að skuldbinda sig í rómantískum samböndum,“ segir í niðurstöðum rannsóknarinnar.
Við gerð rannsóknarinnar voru 250 manns, bæði konur og karlar, beðin um að lesa lista af orðum upphátt. Upptökur af þessu voru síðan kannaðar með tilliti til tíðni og tónhæðar. Þá var tekið tillit til stærðar á munninum og barkakýlinu auk magn testósteróns. Fólkið tók síðan próf með sálfræðilegum spurningum sem tengdust samböndum og framhjáhaldi.