Einangrun og sóttkví þarf ekki að þýða leiðindi og er í reynd fullkomið tækifæri til að verja gæðastundum með sínum nánustu í góðu og skemmtilegu borðspili. DV leitaði til nokkurra valinkunnra Íslendinga eftir ábendingum um gæða borðspil
DV spurði álitsgjafa um meðmæli með spilum í fimm flokkum og ættu því vonandi flestir að finna eitthvað sem hentar þeirra spilakröfum. Álitsgjafar DV að þessu sinni eru:
Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir borðspilasérfræðingur Nexus
Björn Leví Gunnarsson þingmaður
Kristinn Haukur Guðnason blaðamaður
Óskar Árnason stjórnandi Borðspilaspjallsins
Sindri Eldon borðspilaunnandi
Svanhildur Eva Stefánsdóttir annar eigenda Spilavina
FYRIR BYRJENDUR
„Byrjendur ættu að prófa skyldueignina Bohnanza. Það snýst um að safna baunaspilum í raðir fyrir framan sig og selja síðan uppskeruna á réttum tíma fyrir fúlgur fjár. En þú færð ekki spilin sem þú vilt nema með því að víla og díla við sessunautana. Skrautlegar samningaviðræður og mikil spenna!” – Bryndís
„Tsuro. Einfalt og fljótlegt að læra. Fljótlegt að setja upp og tekur stuttan tíma að spila hvert spil. Mjög gott í upphitun á spilakvöldum líka.” – Björn
„Carcassonne. Einfaldar reglur, og eitt af bestu tveggja manna spilunum. Fyrstu tvær viðbæturnar bæta svo spilið fyrir 3-4, og áður en þú veist af ertu kominn með safn.” – Óskar
„Ég myndi mæla með Splendor, það er svo fínn taktur í því. Það er stutt, lítil uppsetning og það verður bara strategískara eftir því sem þú spilar það meira.” – Svanhildur
„Ég myndi mæla með einhverju sem er ekki of langt, ekki of flókið en samt hæfilega nördalegt. Mysterium fellur vel inn í alla þessa flokka, en þar reyna leikmenn að ráða morðgátu út frá draumsýnum sem draugur afhendir þeim. Mysterium er þannig að mann langar strax að spila það aftur og alla langar að prófa að vera draugurinn. Í þokkabót er það gullfallegt.” – Kristinn Haukur
„Catan er held ég best fyrir alla byrjendur, svona eins og matador, nema skemmtilegt. Það er líka eiginlega ekkert direkt konflikt í grunnspilinu, þannig erfitt að fara í fýlu eð vera tapsár.” – Sindri
LENGRI SPIL
„Eitt af ótalmörgum góðum er Castles of Mad King Ludwig. Þar raðar þú niður herbergjum og lystigörðum þar til þú hefur byggt heilan kastala á borðinu fyrir framan þig. En það er hægara sagt en gert þegar konungurinn er frekur og herbergin sem í boði eru verða sífellt fáránlegri. Skemmtilegt fyrir skapandi spilara sem vilja brjóta heilann.” – Bryndís
„Gloomhaven. Stórt spil þar sem þú spilar sömu persónuna í mörgum spilum og það er alltaf ný áskorun í hverju spili. – Björn
„Arkham Horror. Þar ráfa rannsóknarmenn um götur Nýja-Englands á þriðja áratug síðustu aldar og reyna að stemma stigu við þeim ógnum sem guðir á borð við Cthulu, Yog Sothoth og Shub-Niggurath spýja út úr sér. Þetta er vel nördalegt og getur tekið allt kvöldið og langt fram á nótt. Spilið er byggt á hryllingssögum hins stórundarlega snillings H.P. Lovecraft sem er í miklum metum hjá mér.” – Kristinn Haukur
„Age of Steam. 3+ tímar af uppboðum, leiðaskipulagi og vörusendingum með fjöldanum öllum af kortum í boði til að spila á.” – Óskar
„Ég verð að fá að velja tvö, Concordia og Castles of Burgundy. Ástæðan fyrir því er að það munar oft svo litlu og maður nær betri tökum á spilinu með hverjum leik. Ef ég tapa verð ég að fá að taka annan leik því ég gæti unnið hann.” – Svanhildur
„Twilight Imperium er ávallt langspilakóngurinn, epísk sci-fi styrjöld með pólitísku og viðskiptaívafi. Það verður bara betra og hnitmiðaðra með hverri endurútgáfu, og 4. útgáfan er vel smurð fullkomnun.” – Sindri
SAMVINNUSPIL
„Samvinnuspil ársins 2020 er án alls vafa geimfaraspilið The Crew. Uppskriftin hljómar fáránlega: félagsvist, nema allir eru saman í liði! En útkoman er vægast sagt ávanabindandi. Í bæklingnum eru fimmtíu þrautir sem segja leikmönnum hvort, hvenær, hvernig og í hvaða röð þeir eiga að ná slögum af borðinu, með samvinnuna að vopni. Auðvelt að grípa í, hvort sem þú vilt spila í 10 mínútur eða heila kvöldstund.” – Bryndís Ósk
„Ég myndi velja The Crew. Þetta er skemmtilegasta samvinnuspil sem ég hef spilað. Maður á að taka slagi, svipað og í kana, nema allir eru að vinna saman.” – Svanhildur
„Samvinnuspil eru best ef þau eru erfið. Þess vegna myndi ég hiklaust mæla með Robinson Crusoe þar sem leikmenn berjast við náttúruöflin og safna vistum á harðneskjulegri eyðieyju. Kosturinn er líka sá að það er hægt að spila mörg mismunandi ævintýri sem gjörbreyta spilinu í hvert skipti. Samvinnuspil með földum svikara eru líka bráðskemmtileg, til dæmis Shadows Over Camelot eða Battlestar Galactica.” – Kristinn Haukur
„Pandemic. Spilarar hjálpast að við að ráða niðurlögum fjögurra heimsfaraldra í einu.” – Björn
„Ég er mjög lítið fyrir samvinnuspil, en synir mínir elska Forbidden Island. Það er bæði nógu einfalt til þess að þeir nái utan um reglurnar, og heldur þeim spenntum út allt spilið. Það verður vafalaust gaman að spila Pandemic-spilin með þeim þegar þeir eldast.” – Óskar
„Besta samvinnuspilið er tvímælalaust Mansions of Madness, sérstaklega nýjasta útgáfan þar sem snjallsíma-app keyrir spilið fyrir þig. Engin stærðfræði eða bókhald, bara þú og vinir þínir að drepa skrímsli og leysa morðráðgátu.” – Sindri
FYRIR PARTÝIÐ
„Joking Hazard. Svipað spil og Cards Against Humanity og Kommentakerfið.” – Björn
„Ég spila mjög mjög lítið af partíspilum. Einna þá helst í lok hvers spilakvölds þegar pínu galsi er kominn í hópinn. Þá er gjarnan gripið í Cards Against Humanity, sem þykir nú ekki beint fínt hjá borðspilaelítunni en er engu að síður bráðskemmtilegt. Þetta er ansi dónalegt og hálfviðbjóðslegt á köflum og ekki fyrir alla. En í réttum hópi þar sem allt má flakka er þetta gott.” – Kristinn
„Scrawl. Teikni-hvísluleikur þar sem skipst er á að teikna og skrifa eftir því sem er undir. Því fyndnara því meiri munur er á teiknigetu þátttakenda.” – Óskar
„Medium myndi ég segja að væri uppáhalds partíspilið mitt. Maður á að finna sama orð og hinn er að hugsa og það er svo fyndið að reyna að ná því.” – Svanhildur
„Uppáhalds partíspilið mitt er Scrawl. Það er eins og súrasti hvísluleikur í heimi, með dass af dónaskap. Allir leikmenn fá teikniblokk í hendurnar og spjald með frasa sem er gerður til að misskiljast þegar hann er teiknaður. Spilið þar sem enginn hefur rétt fyrir sér, en allir ganga sáttir frá borði.” – Bryndís
„Uppáhalds partíspilið mitt er Magic labyrinth. Segul-aspektið reynir skemmtilega á handleiknina, og stuttar 5 stiga umferðir halda hlutum léttum og hröðum.” – Sindri
UPPÁHALDS SPILIÐ
„Uppáhalds spilið mitt breytist á hverjum einasta degi. Því er kannski auðveldara að tala um spilaflokka. Núna hef ég áhuga á spilum sem eru upplifun í kassa. Þar eru fremst í flokki Unlock!-serían og Exitserían. Þetta eru þrautaherbergi (e. escape room) sem bjóða upp á nýja og spennandi ráðgátu í hverjum kassa. Hugmyndarík hönnun og snjallar þrautir eru ómótstæðileg blanda fyrir alla spennufíkla.” – Bryndís Risk
„2210 A.D. Klassískt spil í nýjum búningi. Gríðarlega taktískt spil þar sem spennan helst frá fyrstu mínútu fram á síðustu.” – Björn
„Root. Geggjaðar teikningar í stríðsspili þar sem hvert lið spilast á gjörólíkan hátt í baráttu um yfirráð í skóginum. Einn er að spila skilvirknisspil, annar forritunar-, þriðji með takmarkað magn af peðum og fjórði er í því að leika Hróa Hött.” – Óskar
„Uppáhalds spilið mitt núna er The Crew sem ég nefndi áðan. Ég á aldrei nein uppáhalds spil almennt heldur bara það sem ég er að spila mest hverju sinni og núna er það samvinnuspilið The Crew.” – Svanhildur
„Terraforming Mars. Sænskt spil sem kom út fyrir fjórum árum og hefur rækilega slegið í gegn og ekki að ástæðulausu. Leikmenn stýra fyrirtækjum sem keppa innbyrðis um auð og völd en vinna jafnframt að því saman að gera Mars að byggilegri plánetu. Það er virkilega ávanabindandi að byggja upp „vélina sína“ og sjá hana stækka og dafna. Viðbæturnar eru líka frábærar, hver á sinn hátt, og ég myndi aldrei spila án sumra þeirra.” – Kristinn Haukur
„Star Trek Attack Wing er kannski uppáhalds spilið mitt, bara út af því að ég er svo mikið Star Treknörd. Enginn annar leikur eða borðspil hefur látið mér líða jafnmikið eins og ég sé inni í minni eigin Star Trek mynd/þætti, og það spil.” – Sindri
________________
COVID-19 býður þó ekki alltaf upp á hittinga, eins og flestum ætti að vera orðið kunnugt um. Svo ef það eru aðilar sem þig langar að spila við, en getur vegna heimsfaraldurs ekki hitt þá skaltu þó ekki örvænta.
Smáforrit
Það eru til smáforrit sem gera þér kleift að spila mörg frægustu spilin í gegnum símann. Nokkur dæmu eru :
Carcasonne
The Castles of Burgundy
Terraforming Mars
Splendor
Pandemic
Prufaðu að slá þínu uppáhaldsspili inn í smáforritaleitarvélina í þínu tæki og sjáðu hvað er í boði.
Boardgame Arena
Ef þú vilt frekar spila í tölvunni, eða hafa val um að spilar þar eða í símanum þá er Boardgame Arena líklega staðurinn fyrir þig og þína. Þar er hægt að spila öll helstu spilin á ákaflega notendavænan máta.
Netskrafl
Viltu hafa þetta bara einfalt og létt ? Skelltu þér inn á netskrafl.is og láttu reyna á orðaforðann.