fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Ungir Sjálfstæðismenn fóru í djammferð til Samherja

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 27. nóvember 2019 11:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sambandsþing SUS fór fram á Akureyri helgina 20. – 22. september 2019. Ungir Sjálfstæðismenn greina frá þessu á Twitter síðu sinni með myndbandi sem sýnir það helsta sem fór fram á þinginu. Ungu Sjálfstæðismennirnir skelltu sér á Hótel KEA á Akureyri og fóru í svokallaða vísindaferð til Samherja.

Vísindaferðir háskólanna eru oft þekktar sem eins konar djammferðir með dassi af fróðleik í leiðinni. Yfirleitt bjóða fyrirtækin upp á áfengi. Oft er farið í þessar ferðir með því markmiði að tengjast atvinnulífinu. Svo virðist því vera sem Ungir Sjálfstæðismenn hafi náð að tengjast einhverjum böndum við Samherjamenn í ferðinni því ekkert hefur heyrst frá þeim vegna Samherjamálsins í kjölfar umfjöllunarinnar um málið.

Bent hefur verið á þetta á Twitter en kona nokkur á forritinu birtir skjáskot af nýjustu tístum ungliðahreyfingarinnar. „Algjör þögn um Samherjamálið,“ segir hún. „Gott að sjá unga, upprenanndi Sjálfstæðismenn sem að kunna að þegja um eitt rosalegasta spillingarmál Íslands. Munu taka við flokknum með stæl.“

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið frá ferð Ungu Sjálfstæðismannanna í Samherja. Í myndbandinu má meðal annars sjá forystumenn í ungliðahreyfingunni skemmta sér með Þorsteini Má, sem sagði af sér sem forstjóri Samherja í kjölfar Samherjamálsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi