fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Jóhannes Haukur laminn með kjöthamri – Sjáðu stikluna

Fókus
Föstudaginn 4. október 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með hlutverk í spennutryllinum The Good Liar og sést til leikarans í miðjum hasar í glænýrri stiklu fyrir myndina. Sjá stórleikararnir Helen Mirren og Ian McKellen um burðarrullurnar.

The Good Liar er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Nicholas Searle og skrifuð af handritshöfundi Mr. Holmes, þar sem Ian McKellen fór einnig með aðalhlutverkið. Að þessu sinni leikur McKellen glæpamann sem ætlar að setjast í helgan stein eftir eitt lokasvindl. Áætlunin er að vinna sér inn traust dularfullrar ekkju og stela peningum hennar, en stigmagnandi vefur lyga reynist hafa ófyrirsjáanleg áhrif á þau bæði.

Myndinni er leikstýrt af Óskarsverðlaunahafanum Bill Condon, leikstjóra Chicago, Dreamgirls og Beauty and the Beast. Tökur á myndinni eru hafnar og fara að mestu fram í Bretlandi, en einnig í Þýskalandi. Condon er einnig einn framleiðandi myndarinnar og hefur áður unnið með McKellen að myndunum Mr. Holmes og Gods and Monsters, en Condon vann Óskarsverðlaun fyrir árið 2000 í flokki besta handrits byggðu á áður útgefnu efni. Leikstjórinn naut einnig mikillar velgengni með lokamyndum Twilight-seríunnar og halaði Beauty and the Beast inn rúman milljarð í Bandaríkjadölum á heimsvísu.

The Good Liar er væntanleg í kvikmyndahús í vetur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki