Íslendingar bíða eflaust margir hverjir spenntir eftir Eurovision-kvikmyndinni með gamanleikaranum Will Ferrell í aðalhlutverki.
Það eru risarnir hjá Netflix sem framleiða Eurovision-myndina og er þetta fyrsta samstarfsverkefni grínarans við streymisveituna. Tökur hafa verið í fullum gangi síðan í sumar, meðal annars í London, Edinborg og hefur bærinn Húsavík verið nefndur sem einn af tökustöðum. Það kemur því fáum á óvart að fjöldi þekktra, íslenskra leikara kemur fram í myndinni.
En hvað vitum við meira um þessa bíómynd sem á eftir að setja Ísland í sviðsljósið sem aldrei fyrr í Hollywood?
Til að gefa lesendum smá heildarmynd á söguþráð kvikmyndarinnar Eurovision þá ku hún fjalla um eyðimerkurgöngu Íslands í keppninni sem á að hafa staðið í rúma fjóra áratugi. Ferrell fer með hlutverk Íslendingsins Lars Erickssonar frá Húsavík og segir myndin frá þátttöku hans og Sigrit, eiginkonu hans (sem leikin er af Rachel McAdams), í söngvakeppninni stórfrægu, sem er stærsti draumur þeirra beggja. Heimildir herma að þau Lars og Sigrid séu einnig systkini.
Með önnur hlutverk fara Dan Stevens (Downton Abbey), Natasia Demetriou (What We Do in the Shadows), Elina Alminas (Ex Machina) og Melissanthi Mahut. Söngkonan Demi Lovato fer einnig með hlutverk Íslendings í myndinni og fyrrverandi Bond-leikarinn Pierce Brosnan leikur föður Lars, sem í sögunni er sagður vera myndarlegasti karlmaður landsins.
Og þá komum við að heimafólkinu.
Arnar Jónsson
Arnmundur Ernst Björnsson
Álfrún Rose
Björn Hlynur Haraldsson
Björn Stefánsson
Bríet Kristjánsdóttir
Elín Pétursdóttir
Guðmundur Þorvaldsson
Hannes Óli Ágústsson
Hlynur Þorsteinsson
Jói Jóhannsson
Nína Dögg Filippusdóttir
Ólafur Darri Ólafsson
Smári Gunn
Leikarinn Ari Freyr Ísfeld Óskarsson var fenginn til að kenna stórstjörnunum Ferrell og McAdams íslenskan framburð. Hermt er að R-in hafi reynst þeim erfið og sömuleiðis Þ-hljóðin í íslenskunni.
Leikstjórinn David Dobkin situr við stjórvölinn en hann á meðal annars að baki kvikmyndirnar Wedding Crashers, Fred Klaus, Shanghai Knights og The Change-Up. Eins og sjá má hefur hann mikið sérhæft sig í gamanmyndum en Ferrell skrifar handritið að myndinni ásamt Andrew Steele. Þeir kumpánar hafa reglulega unnið saman síðan á dögum Ferrell hjá grínþættinum Saturday Night Live og skrifuðu saman myndina Casa de mi Padre.
Adam McKay, leikstjóri Anchorman-myndanna, Step Brothers og The Big Short, er einn af helstu framleiðendum myndarinnar.
Tökulið Eurovision-myndarinnar var einnig statt ásamt leikurum myndarinnar í Tel Aviv í Ísrael í ár. Það kom hins vegar mörgum í opna skjöldu þegar Will birtist á keppninni í Lissabon árið áður. Það voru því enn óvæntari fréttir þegar Will sagðist vera mikill aðdáandi keppninnar, en hann hefur horft á hana árlega frá árinu 1999, eftir að fjölskylda eiginkonu hans, hinnar sænsku Vivecu Paulin, horfði á keppnina með honum.
Will og Viveca gengu síðan í það heilaga árið 2000, en Will hefur áður mætt á Eurovision, til að mynda á úrslitakvöldið í Kaupmannahöfn árið 2014.
Streymisveitan hefur ekki gefið upp nákvæma dagsetningu á myndinni en áður hefur verið gefið upp að hún verði gefin út fyrir jól.