fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fókus

Kórperlur með Schola cantorum á Allra heilagra messu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 2. nóvember 2018 11:30

Ljósmynd: Dr. Sigurður Árni Þórðarson 2017

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, heldur tónleika í Hallgrímskirkju sunnudaginn 4. nóvember á Allra heilagra messu, líkt og undanfarin ár. Að þessu sinni flytur kórinn þrjú áhrifamikil kórverk, Media vita eftir John Sheppard, Miserere eftir James MacMillan og Missa defunctorum eftir Kjell Mörk Karlsen. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. 

Tónleikar Schola cantorum á Allra sálna messu undanfarin ár, þegar látinna er minnst, hafa notið mikilla vinsælda í kertum prýddri kirkjunni, þar sem að cappella söngur kórsins nýtur sín einkar vel í hljómburði kirkjunnar.

Ljósmynd: Dr. Sigurður Árni Þórðarson 2017

Endurreisnartónskáldið John Sheppard (d. 1558) var uppi á Englandi á fyrri hluta 16. aldar. Hann skrifaði mikið af fjölradda kirkjutónlist. Eitt þekktasta verk hans er Media vita, 6 radda kórverk, sem er tvinnað í kring um gregorgst andstef við lofsöng Símeons, Nunc dimittis, “Nú lætur þú Drottinn, þjón þinn í friði fara”.

Skoska tónskáldið James MacMillan (f. 1959) hefur skipað sér sess sem einn fremsti höfundur kirkjulegrar kórtónlistar nú á dögum. Kórverkið Miserere frá 2009 fyrir 4-8 radda kór án undirleiks, er í senn aðgengilegt og krefjandi bæði fyrir flytjendur og áheyrendur. Texti verksins er 51. Davíðssálmur, um miðbik verksins hljóma 4 vers tónsett við sama stef og hið margfræga Miserere eftir Allegri byggir á.

Norska tónskáldið Kjell Mörk Karlsen (f. 1947) skrifaði Sálumessu fyrir kór án undirleiks til minningar um eiginkonu sína og var frumflutt fyrir þremur árum. Schola cantorum flutti verkið á allra sálnamessu 2016, hrifningin á verkinu kallaði á annan flutning í ár.

Tónleikar þessir voru fyrirhugaðir á Allra sálna messu í fyrra, en fella þurfti tónleikana niður vegna óveðurs í Reykjavík.

Schola cantorum hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og mikið lof fyrir söng sinn bæði hérlendis sem erlendis. Kórinn var m.a. valinn „Tónlistarflytjandi árins“ á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars 2017.

Almennt miðaverð: 3500 kr. Miðasala á midi.is og við innganginn 1 klst. fyrir tónleika.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 3 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short