fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Pétur og Logi finna ástina – Fækkar um tvo í félagi föngulegra piparsveina

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 2. nóvember 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Athafnamaðurinn Pétur Einarsson er höfundur myndarinnar Ransacked, sem fjallar um áhrif bankahrunsins á líf venjuleg fólks á Íslandi og starfar hann í dag sem sjálfstæður framleiðandi.

Pétur er fyrrverandi forstöðumaður útibús Glitnis í London og fyrrverandi forstjóri Straums, sonur Einars Benediktssonar, fyrrverandi sendiherra, og alnafni skáldsins fræga. Pétur lánaði Baltasar Kormáki bæði íbúðina sína og líkama í kvikmyndinni Eiðinum, en þar var hann staðgengill Baltasars og hjólaði og synti af miklum krafti, sem var lítið mál fyrir Pétur enda annálaður íþróttamaður sem keppir reglulega í Járnkarlinum.

Pétur er í sambandi með Ilonu Grimm, en nýlega deildi hann mynd af þeim á Facebook í tilefni af því að ár var komið síðan þau kynntust. Ilona er frá Þýskalandi, en er búsett í Reykjavík. Nokkur aldursmunur er á parinu, Ilona er 32 ára og Pétur 54 ára, en ástin spyr ekki um aldur eða landamæri.

Tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Logi Pedro Stefánsson er kominn í samband með Hallveigu Hafstað Haraldsdóttur sem starfar hjá 66°NORÐUR. Logi Pedro birti nýlega mynd af þeim á Instagram þar sem hann óskar henni til hamingju með afmælið. Fjögurra ára aldursmunur er á parinu, en þau eru 22 og 26 ára.

Logi á einn son frá fyrra sambandi með Reykjavíkurdótturinni og leikkonunni Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína

„Útlitsbestun“ fer með unga fólkið á skuggalegar slóðir – Brjóta í sér andlitsbein og sprauta sig með vafasömum efnum frá Kína
Fókus
Fyrir 3 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short