„Er í skýjunum með þetta allt saman,“ segir leikkonan Þórunn Lárusdóttir. Á dögunum var fyrsta kvikmynd hennar í fullri lengd, Shattered Fragments, valin til sýningar á kvikmyndahátíðinni Sitges á Spáni. Þórunn segir í stöðufærslu á Facebook að frumsýningardagurinn hafi verið yndislegur.
Kvikmyndin, sem Þórunn leikstýrði og skrifaði handritið að með öðrum, var gerð á Spáni síðasta vetur og var hluti af áfanganum Digital Feature Film Programme á vegum kvikmyndasmiðjunnar Afilm. Áfanginn er ætlaður skapandi einstaklingum sem vilja stíga sín fyrstu skref í gerð kvikmynda í fullri lengd.
Védís Hervör Árnadóttir samdi tónlist myndarinnar og handritið skrifaði Þórunn með Söru Louise Mahgoub og Jeroen Cocquyt og leikstýrðu þau myndinni með Brahim Amzil. Á meðal aðalleikara eru Andrea Ösp Karlsdóttir og Kolbeinn Lárus Petersen.
Stiklu fyrir Shattered Fragments má sjá að neðan ásamt stuttu myndbroti á bakvið tjöldin.