fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
FókusKynning

Steinsmiðja Akureyrar: Gæði og persónuleg þjónusta í fyrirrúmi

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 30. apríl 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Birnir Reyr Vignisson og Sunneva Árnadóttir keyptu Steinsmiðju Akureyrar áramótin 2016/17 af stofnanda fyrirtækisins, Þóri Barðdal, sem rekið hafði fyrirtækið frá 2011.

„Okkur barst til eyrna að Þórir hefði hugsanlega áhuga á að selja fyrirtækið og okkur fannst þetta vera alveg tilvalið fyrir okkur. Mig var farið að langa til að breyta til og svona vinna hentar mér mjög vel,“ segir Birnir. „Það varð ekki úr strax en um ári síðar hafði Þórir samband við okkur og spurði hvort við hefðum enn áhuga og við slógum að sjálfsögðu til.

Fljótlega eftir að við keyptum fyrirtækið, fluttum við það í huggulegt húsnæði að Njarðarnesi 4. Það hefur gengið mjög vel hjá okkur hingað til og við horfum bjartsýn fram á við og ætlum að gera enn betur. Gæði og persónuleg þjónusta verður þó alltaf í fyrirrúmi.

Við gerum minnisvarða úr því sem til fellur af íslensku grjóti og svo úr innfluttu graníti. Granít er það harðasta sem til er og það endist í mannsaldra. Við hugsum einnig um gæði, þegar kemur að aukahlutum, eins og luktum, vösum og fuglum. Við viljum að þetta endist vel með steininum. Við bjóðum upp á frían flutning um allt land á legsteinum.“

Saltlampar og ný framleiðsluvara, „A ROCK FROM ICELAND“

Steinsmiðja Akureyrar flytur einnig inn saltlampa frá Himalaja. „Það eru nokkrar verslanir sem eru með lampa frá okkur, auk þess sem þeir eru seldir í verslun Steinsmiðjunnar, þeir eru að seljast vel, sérstaklega í skammdeginu og fyrir jólin.

Það var svo í fjöruferð með börnunum að við fengum hugmyndina að því að gera eitthvað með fjörusteina. Við byrjuðum á því að búa til stein-snaga og gera tilraunir með þá, það er sandblása myndir í steininn og útfæra aðeins vinnsluna. Síðan vaknaði hugmyndin að „A ROCK FROM ICELAND“. Okkur fannst þetta tilvalinn minjagripur fyrir ferðamenn og jafnvel skemmtileg tækifærisgjöf. Við erum að grafa myndir í steininn, eins og til dæmis lunda, Ísland, hvali, hrafn, Ægishjálm og kennileiti eins og Herðubreið og Hvítserk. Möguleikarnir eru ansi margir. Það fylgir einnig umhverfisvænn gjafapoki hverjum steini.

Steinarnir hafa fengið mjög góðar viðtökur og fást sem stendur á nokkrum stöðum á Norðausturlandi og  í Reykjavík. „Við erum að mjög spennt fyrir þessu verkefni, það verður gaman að sjá hvernig það mun þróast,“ segir Birnir.

„Heimasíðan minnismerki.is var uppfærð á árinu. Um 70% af viðskiptunum fara fram í gegnum hana. Á henni má sjá allt sem Steinsmiðja Akureyrar býður upp á. Við erum líka á Facebook.“

Steinsmiðja Akureyrar er staðsett að Njarðarnesi 4, Akureyri. Afgreiðslutími er virka daga frá kl. 13 til 17. Sími 466-2800 og heimasíða minnismerki.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum