fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
FókusKynning

Heillandi skartgripaheimur að Hverfisgötu 39

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 27. mars 2018 09:00

Erling og Helga Ósk

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erling  og Helga Ósk eru gullsmiðir sem reka verslun og vinnustofu að Hverfisgötu 39 í Reykjavík. Þau eiga  bæði að baki langan feril sem framsæknir hönnuðir og mörg verka þeirra eru á mörkum þess að vera skartgripir eða listaverk. Vinnustofa og verslun Erlings og Helgu við Hverfisgötu mynda heillandi og aðlaðandi umhverfi þar sem hönnun þeirra nýtur sín vel, og gaman er að koma þangað og skoða skartgripi.

Erling Jóhannesson útskrifaðist sem gullsmiður frá Tækniskólanum í Reykjavík 1983. Eftir framhaldsnám í gullsmíði í Flórens á Ítalíu starfaði hann á ýmsum verkstæðum í Reykjavík. Árið 1990 útskrifaðist hann sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands og hefur hann unnið jöfnum höndum við skartgripagerð og leiklist, bæði hér heima og erlendis. Skartgripir Erlings eru af ýmsum toga og á löngum ferli hafa verkefnin verið fjölbreytt, en rauður þráður í vinnu hans er skýr formhugsun þar sem formin eru uppdiktuð og  óræð en með einhverjum undarlegum hætti vísa í ekki alveg augljósan veruleika.

 

Erling og Helga Ósk

Helga Ósk lauk námi í gullsmíði frá Tækniskólanum árið 1995 og framhaldsnámi frá Institute for Ædelmetal í Kaupmannahöfn 2010. Hún hefur unnið bæði hér heima og erlendis við skartgripasmíði og hönnun. Verk Helgu spanna fjölbreytt svið skartgripagerðar en það sem einkennir verk hennar flest er hvernig hún hefur tvinnað saman hefðbundið víravirki og samtímaskartgripagerð. Víravirkið sem á langa sögðu í íslenskri skartgripagerð er ákaflega fínlegt handverk sem Helga hefur öðrum gullsmiðum fremur náð að færa til samtímans með frumlegri og fágaðri útfærslu. Auk þess hefur Helga smíðað og hannað skartgripi sem margir hverjir ramba á mörkum skartgripa og sjálfstæðra listaverka.

Erling og Helga Ósk

Allt frá framúrstefnu til hefðbundinna skartgripa

„Við förum bæði oft út fyrir þessa hefðbundnu ramma, sprengjum hugmyndalandamærin, þá erum við oft að vinna með eitthvað sem er á mörkum þess að vera skartgripir. Vinnum til dæmis með óhefðbundin efni og hefðbundna notkun og form skartgripa. Við erum á því róli að leika okkur með svona óhefðbundna skartgripi yfir í eitthvað alveg hefðbundið og aðgengilegt, svo þrátt fyrir þessa frjálslegu nálgun geta flestir fundið eitthvað við sitt hæfi.“

Erling og Helga Ósk

Aðspurð hvert þau sæki innblástur í verk sín segir Erling að þau séu ekki sérstaklega upptekin af innblæstri og Helga tekur undir það: „Ég held að við vinnum á svipaðan hátt þó að útkoman geti verið ólík. Við leggjum lítið upp úr innblæstri, það er ekkert vandamál að fá hugmyndir ef maður kann sitt fag, þær einfaldlega koma. Ef þú kannt þitt fag þá þarftu ekki að leita að innblæstri, það sem við gerum hangir saman við það sem við kunnum og ef þú kannt eitthvað vel þá kemur þetta allt til þín,“ segir Erling.

Hann segir jafnframt að þau leiti mikið hvort til annars með hugmyndir og úrvinnslu: „Við spyrjum kannski hvort annað: Hvernig myndir þú leysa þetta? Og við köstum hugmyndum á milli. Þessi faglegi félagsskapur er ómetanlegur, það er mikilvægt að geta verið í sambandi og eiga samtal við kollega sína.“

Skartgripir í þessum gæðaflokki hvergi ódýrari

Verðbilið er mjög vítt á skartgripunum hjá Erling og Helgu Ósk. Allt frá mjög viðráðanlegu verði upp í eitthvað mjög dýrt fyrir þá sem hafa áhuga á slíku. „Útlendingar sem koma hingað segjast ekki fá sérsmíðaða skartgripi í þessum gæðaflokki nokkurs staðar á jafn lágu verði eins og á Íslandi,“ segir Erling. Aðspurður segir hann að erlendir ferðamenn séu líklega um helmingur viðskiptavinanna.

Erling og Helga Ósk

Helga Ósk og Erling hafa skapað mjög skemmtilegt umhverfi að Hverfisgötu 39. „Við viljum hafa þetta lifandi stað þar sem gaman er fyrir áhugafólk um skartgripi og frumlega hönnun að kíkja inn á í göngutúr um miðbæinn,“ segir Erling. Staðsetningin er líka heppileg við Hverfisgötuna sem er að taka miklum og skemmtilegum breytingum.

Verslunin að Hverfisgötu 39 er opin virka daga frá kl. 10 til 18 og laugardaga frá 11 til 16. Vefverslun og nánari upplýsingar eru á vefsíðunni https://erlingoghelgaosk.is/.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
KynningMatur
28.07.2024

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum

Ný ásýnd Orku rakar inn verðlaunum
Kynning
08.06.2024

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu

Skyttan Rúnar líka hittinn á shuffleborðinu
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
29.03.2024

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“

„Sauna hækkar hjartsláttinn, eykur vellíðan, þú sefur betur. Saunað hreinsar allt út“
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
14.02.2024

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri

Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 – Kraftmeiri, meiri drægni og ómótstæðilega skemmtilegur í akstri
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7