fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
Eyjan

Andri Þór Guðmundsson: Stórkostlegt fyrir Ölgerðina að fara á markað – fengum 7000 fjölskyldur í hluthafahópinn

Eyjan
Sunnudaginn 15. mars 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ýmsar kvaðir og skyldur fylgja því að skrá fyrirtæki á markað en Andri Þór Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Ölgerðarinnar, telur kostina við að vera skráð fyrirtæki vera miklu meiri en ókostina. Hann sér tækifærin á hverju strái fyrir áframhaldandi vöxt Ölgerðarinnar og ekki síst í tengslum við kaup á fyrirtækjum í skyldum rekstri. Andri Þór er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.

Hvernig er það? Er auðvelt og þægilegt að standa í svona rekstri og fjárfestingum? Þið eruð í talsverðum fjárfestingum. Þið vaxið bæði svona lífrænt og með kaupum á nýjum einingum. Hvernig er viðskiptaumhverfið hérna á Íslandi og ef þú berð það saman við, nú ert þú með samanburðinn alveg frá því fyrir hrun.

„Já. Ég ætla, ég er ekki kominn hingað til þess að vera að væla og skæla, en það er vissulega mjög snúið og tafsamt og kostnaðarsamt að reka fyrirtæki og standa í brölti. Eftirlitsiðnaður, hvaða nafni sem hann nefnist, hefur vaxið. Kröfur varðandi sjálfbærni og sjálfbærniuppgjör og upplýsingamiðlun hefur aukist gríðarlega. Við fengum auðvitað á okkur jafnlaunavottun sem betur fer er verið að draga aðeins til baka núna og gera minni kröfur. Þetta er náttúrlega sko það sem á að vera sko í forgrunni hjá stjórnvöldum á hvaða tíma sem er að einfalda lífið og eyða sóun vegna þess að það er rosalega mikil sóun í þessu kerfi hjá okkur í dag. Svo erum við náttúrlega með Samkeppniseftirlitið og hérna, það tekur náttúrulega vissulega gríðarlega mikinn tíma að fara þar í gegn.“

Fyrirtæki eins og þið, það þarf allt sem þið gerið, ef þið eruð að kaupa annað fyrirtæki, það þarf að fara í gegnum allan prósessinn hjá Samkeppniseftirlitinu.

„Já, já, það eru náttúrlega bara ákveðnar reglur sem allir lúta, það er hægt að afgreiða það svo sem á skömmum tíma ef þetta er í einhverjum óskyldum rekstri sem við erum ekki í, en ef það eru einhverjir snertifletir, þá náttúrlega þurfa þeir að fara í dýpri skoðun. En almennt, eins og ég segi, ég er ekki með neitt væl hérna, eða skæl, þetta er bara, það er gaman að vera í bisness og sem betur fer er bara enn þá mikið svigrúm fyrir hluthafa Ölgerðarinnar að skapa verðmæti, og ég sé verðmætin fyrir Ölgerðina, eða Beru núna, verða til með þá frekari yfirtökum og kaupum á fyrirtækjum í skyldum rekstri. Ég sé fyrir mér vaxtarmöguleika og tækifæri í uppbyggingu á útflutningi, jafnvel á erlendri fjárfestingu og áhættudreifingu hvað það varðar. Ég sé mikil tækifæri í uppbyggingu á vöru- og dreifingarmiðstöð uppi á Hólmsheiði. Þar munum við vonandi klára byggingu seinni hluta ársins 2029 ef allt gengur eftir. Og það mun leysa úr læðingi mikla samlegð hjá þessum félögum. Þannig að við erum ekki að kaupa til dæmis Kjarnavörur og Gæðabakstur bara til þess að reka þau alveg nákvæmlega eins og þau eru. Við sjáum náttúrlega fram á tekjusamlegð og einhverja kostnaðarsamlegð líka og það eru spennandi tímar fram undan hjá okkur og það er fullt af tækifærum.“

Nú er náttúrlega oft í umræðunni hvað það sé miklu dýrara, allt fjármagn er miklu dýrara á Íslandi. Þið eruð háðir innlendri fjármögnun, er það ekki?

„Jú, jú, við erum það eins og svo sem önnur fyrirtæki. Þetta eru náttúrlega gríðarlega háir vextir.“

Þið eruð ekki eitt af þessum fyrirtækjum sem, af því þið eruð ekki með ykkar tekjur í gjaldeyri.

„Við getum að litlu leyti, ef við ætlum að vera með áhættustýringuna, þá erum við náttúrlega líka ekki með nema kannski 20 milljónir dollara í erlendri veltu, þannig að það er náttúrlega mikill minnihluti af okkar veltu. En þarna eru tækifæri til, til vaxtar og þetta er vissulega áskorun að vera í svona vaxtaumhverfi. Við búum náttúrlega svo vel að við erum í Kauphöll. Við gætum sótt okkur fjármagn á markað ef að svo bæri undir, ekki það að ég sé að boða það langt í frá, en hérna, en það getum við.“

Já, ég fór nefnilega og ætlaði að, ætlaði að aðeins að kíkja á upplýsingar í Kauphöllinni um Ölgerðina og krossbrá þegar ég fann ekki Ölgerðina. Og kíkti aðeins ofar og þá var þetta orðið Bera.

„Nákvæmlega, Bera var, eins og þú veist, móðir Egils Skallagrímssonar þannig að það fer vel á því að móðurfyrirtækið heiti þetta.“

Akkúrat. Það er líka ákveðið aðhald að vera skráð fyrirtæki. Það er alls konar upplýsingaskylda. Þið eruð náttúrlega með skráð hlutabréf, þið eruð með skráð skuldabréf, geri ég ráð fyrir.

„Já, við erum með víxla. Já, já, það er vissulega aðhald og sumir, ja, margir höfðu nú varað með við að þetta væri algjört helvíti að vera með fyrirtæki skráð á markað, hundleiðinlegt og allt það. Ég hef ekki upplifað það. Ég hef miklu fremur séð þetta sem tækifæri.

Það að fara á markað fyrir Ölgerðina var náttúrulega bara stórkostlegt vegna þess að þarna fengum við 7.000 fjölskyldur sem hluthafa, sem eigendur í Ölgerðinni. Og ég er sannfærður um það að það eigi að minnsta kosti hluta af þeirri skýringu að markaðshlutdeild okkar í öllum flokkum jókst.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Andri Þór Guðmundsson: Gríðarleg tækifæri í vöruþróun og samstarfi við birgja – Ísland kjörið fyrir nýjungar

Andri Þór Guðmundsson: Gríðarleg tækifæri í vöruþróun og samstarfi við birgja – Ísland kjörið fyrir nýjungar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ingibjörg Isaksen þakkar fyrir sig eftir að hafa verið sett til hliðar

Ingibjörg Isaksen þakkar fyrir sig eftir að hafa verið sett til hliðar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Alma Möller: Fjölþættar lausnir þarf – bindum vonir við leiguleiðina

Alma Möller: Fjölþættar lausnir þarf – bindum vonir við leiguleiðina
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Móðurmál og mannamál

Jón Gnarr skrifar: Móðurmál og mannamál
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Braggablús