fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Eyjan

Jón Örn í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu

Eyjan
Mánudaginn 2. mars 2026 12:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Örn Árnason gekk um áramótin í eigendahóp Markarinnar lögmannsstofu en hann hefur starfað hjá stofunni síðan 2018.

Jón Örn, sem er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi, lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2011 og meistaraprófi árið 2014. Hluta meistaranámsins tók hann við Háskólann í Uppsölum. Með námi starfaði Jón hjá ríkisskattstjóra en eftir útskrift sem lögfræðingur hjá yfirskattanefnd. Hafði hann því aflað sér víðtækrar reynslu af opinberri stjórnsýslu og skattamálum áður en hann kom til starfa hjá Mörkinni. Ásamt skatta- og stjórnsýslurétti eru helstu starfssvið Jóns Arnar félagaréttur og eignaréttur.

Mörkin lögmannsstofa hefur verið starfrækt frá árinu 1975 og veitt innlendum sem erlendum fyrirtækjum, stéttarfélögum, stofnunum og einstaklingum alhliða lögmannsþjónustu allan þann tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað